Körfubolti

Bikarmeistarablús í Höllinni í boði Ár­menninga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jónína Þórdís Karlsdóttir, fyrirliði Ármannsliðsins, var með þrettán fráköst og tíu stoðsendingar í kvöld.
Jónína Þórdís Karlsdóttir, fyrirliði Ármannsliðsins, var með þrettán fráköst og tíu stoðsendingar í kvöld. Vísir/Anton

Ármann byrjar frábærlega í neðri hluta Bónusdeildar kvenna í körfubolta því liðið vann óvæntan níu stiga sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í kvöld, 84-75.

Keflavík er efst í neðri hlutanum þegar keppni hefst en Ármann sat í neðsta sætinu með aðeins tvo deildarsigra í allan vetur.

Það er því óhætt að segja að þessi úrslit hafi komið mörgum á óvart en það voru margar að spila mjög vel fyrir Ármannsliðið í kvöld.

Íslensku stelpurnar voru í stuði í þessum leik. Sylvía Rún Hálfdanardóttir var frábær með sín 23 stig auk fjögurra stolinna bolta en hún hitti úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Dzana Crnac skoraði 19 stig og fyrirliðinn Jónína Þórdís Karlsdóttir var með 7 stig, þrettán fráköst og tíu stoðsendingar.

Kylie Savannah Kornegay-Lucas fór einnig á kostum, skoraði 22 stig, tók 18 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Í vörninni varði hún þrjú skot og stal fjórum boltum.

Keishana Washington var langatkvæðamest hjá Keflavík en hún skoraði 24 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði tólf stig og Angelina Turmel var með ellefu stig.

Tvíburasysturnar Sara Rún og Bríet Sif Hinriksdætur sem fóru á kostum í síðasta leik hittu aðeins úr 1 af 16 skotum sínum og enduðu með þrjú stig samanlagt og -10 í framlagi. Þær voru einnig með níu tapaða bolta saman og áttu algjörugan hauskúpuleik sem Keflavíkurkonur máttu alls ekki við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×