Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 13:51 Okkar eigin Laufey Lín hefur verið fastagestur á Met gala, flottustu tískuhátíð í heimi, undanfarin ár. Kevin Mazur/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue Fyrsta mánudagskvöld maí mánaðar er á ári hverju mikið tilhlökkunarefni fyrir tískuunnendur. Tilefnið er galakvöld Metropolitan safnsins í New York borg en viðburðurinn er betur þekkt sem Met Gala.
Helstu tískuhús heims bjóða stórstjörnum að klæðast einstakri hönnun og mæta sem gestir á kvöldið sem er jafnframt risa fjáröflun fyrir þetta sögulega safn. Á hverju ári er nýtt þema sem einkennir klæðaburð gesta og kvöldið í heild sinni og samhliða þessu opnar listasýning í þemanu á Met safninu, sem er rótgróinn hluti af menningu Manhattan eyjar. View this post on Instagram A post shared by The Zoe Report (@thezoereport) Þemað í ár er einfalt en að sama skapi er hægt að fara í margar skemmtilegar áttir með því en það er einfaldlega: Tíska sem list. Tískan er auðvitað list yfir höfuð og mörk milli hönnunar og listsköpunar hafa fyrir löngu horfið. Þó má ætla að tískuhúsin fari ýktar og nýjar leiðir og sköpunargleðinni verði engin takmörk sett. Lífið á Vísi verður að sjálfsögðu með puttann á púlsinum með ítarlega yfirferð á klæðaburði stjarnanna mánudagskvöldið fjórða maí næstkomandi.
Tíska og hönnun Bandaríkin Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira