Erlent

Sendi­herra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein hand­tekinn

Eiður Þór Árnason skrifar
Peter Mandelson harmaði að Jeffrey Epstein hefði verið dæmdur fyrir að falast eftir kynlífi hjá ólögráða stúlku í tölvupósti sem hann sendi honum árið 2008.
Peter Mandelson harmaði að Jeffrey Epstein hefði verið dæmdur fyrir að falast eftir kynlífi hjá ólögráða stúlku í tölvupósti sem hann sendi honum árið 2008. AP/Carl Court

Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Breska lögreglan hóf að rannsaka hinn 72 ára Mandelson fyrr í þessum mánuði eftir að ríkisstjórn Keirs Starmer afhenti gögn um samskipti sendiherrans fyrrverandi við Epstein. Átti að rannsaka meint brot sendiherrans í opinberu starfi. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá.

Þetta gerðist í kjölfar þess að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti tölvupósta sem bentu til að Mandelson hefði áframsent upplýsingar til Epstein þegar hann var viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Gordons Brown, fyrrverandi forsætisráðherra.

Framkvæmdu húsleitir

Peter Mandelson sást leiddur burt frá heimili sínu í Camden í norðurhluta Lundúna síðdegis í dag af óeinkennisklæddum lögreglumönnum Var hann svo settur í aftursæti ómerktrar bifreiðar. 

„Lögreglumenn hafa handtekið 72 ára gamlan mann, grunaðan um misferli í opinberu starfi,“ sagði í yfirlýsingu frá lögreglunni í Lundúnum.

„Hann var handtekinn í Camden mánudaginn 23. febrúar og hefur verið færður á lögreglustöð í London til yfirheyrslu.“

„Þetta kemur í kjölfar þess að heimildir til húsleitar voru veittar fyrir tvenn heimilisföng á Wiltshire- og Camden-svæðunum.“

Stórt nafn innan Verkamannaflokksins

Peter Mandelson hóf störf fyrir Verkamannaflokkinn á níunda áratugnum og hafði verið áberandi innan flokksins í áratugi. Hann gegndi lykilhlutverki í yfirburðasigri Tony Blair í kosningunum árið 1997, að sögn BBC.

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, skipaði hann sendiherra í Washington í desember 2024. Á þeim tíma lá fyrir að hann hefði verið vinur dæmda kynferðisafbrotamannsins Jeffreys Epstein.

Lávarðurinn Mandelson var rekinn úr starfi í september síðastliðnum eftir að forsætisráðuneytið sagði að nýjar upplýsingar hefðu komið fram sem sýndu hversu náið samband þeirra var.

Hann sagði af sér sæti í lávarðadeild breska þingsins eftir að birting nýrra skjala tengdum Epstein í Bandaríkjunum vakti nýjar spurningar um samskipti hans við kynferðisafbrotamanninn.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×