Birtu rasískan viðbjóð sem beindist að fjórum leikmönnum Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 09:32 Tolu Arokodare spyr hvers vegna fólk fái enn í dag að ausa út rasisma á samfélagsmiðlum, án afleiðinga. Getty/Pedro Porru Að minnsta kosti fjórir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta urðu fyrir barðinu á kynþáttaníði á samfélagsmiðlum í tengslum við leiki helgarinnar.
Wolves og nígeríski framherjinn Tolu Arokodare fóru þá leið að birta sum af rasísku og hómófóbísku skilaboðunum sem hann fékk send eftir að hafa klikkað á vítaspyrnu í 1-0 tapinu gegn Crystal Palace í gær. Skilaboðin eru hörmuð og sögð viðbjóðsleg, og hafa Úlfarnir tilkynnt þau til lögreglu og viðkomandi samfélagsmiðla. View this post on Instagram A post shared by Wolves (@wolves) Romaine Mundle, kantmaður Sunderland, mátti einnig þola rasísk skilaboð eftir tapið gegn Fulham í gær og hið sama má segja um Hannibal Mejbri og Wesley Fofana eftir 1-1 jafntefli Burnley og Chelsea á laugardaginn. Samtökin Kick It Out, sem berjast gegn mismunun, hvetja til aðgerða: „Þetta hefur verið skelfileg helgi eftir að fjórir leikmenn vöktu athygli á kynþáttaníði sem þeir hafa orðið fyrir á samfélagsmiðlum. En það er sorgleg staðreynd að við vitum að þetta gerist reglulega.“ „Skilaboðin frá þeim eru skýr og afdráttarlaus: aðgerða er þörf. Það er ekki hægt að ætlast til þess að leikmenn umberi slíka hegðun, og það ætti enginn annar að gera heldur.“ Kallað hefur verið eftir því að forráðamenn samfélagsmiðlanna bregðist við. „Það er enn ótrúlegt fyrir mér að við séum að spila á tímum þar sem fólk hefur svo mikið frelsi til að tjá slíkan rasisma án nokkurra afleiðinga,“ skrifaði Arokodare í Instagram-story hjá sér og bætti við: „Þessir einstaklingar eiga ekkert erindi í íþróttina okkar og sameiginlega verðum við að grípa til aðgerða til að refsa öllum sem skaða íþróttina á þennan hátt, sama hverjir þeir eru.“
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira