Arteta klár í baráttuna: „Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni eru maraþon“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2026 20:43 Mikel Arteta fagnar eftir leikinn á Tottenham-leikvanginum. getty/Mike Hewitt Eins og við mátti búast lá vel á Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, eftir 1-4 sigurinn á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði sína menn hafa svarað jafnteflinu við Wolves vel og hrósaði markaskorurunum Eberechi Eze og Viktor Gyökeres í hástert. „
Mér fannst við jafnvel betri í fyrri hálfleik. Staðan hefði líklega átt að vera allt önnur. Ég er mjög ánægður og stoltur af því hvernig við nálguðumst leikinn; grimmdina og yfirvegunina sem við sýndum,“ sagði Arteta eftir leikinn á Tottenham-leikvanginum í dag. Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1, en Arsenal skoraði svo þrjú mörk í seinni hálfleik. „Það er aldrei auðvelt að koma hingað en strákarnir eiga mikið hrós skilið hvernig þeir gerðu þetta,“ bætti Arteta við. Arsenal gerði 2-2 jafntefli við botnlið Wolves á miðvikudaginn og í kjölfarið spurðu margir sig hvort Skyttunum væri að fatast flugið í toppbaráttunni. Leikurinn í dag sýndi hið þveröfuga og Arsenal vann öruggan sigur. „Þetta er fegurðin við fótboltann. Þegar þú horfir aftur á leikinn gegn Wolves; hvernig í fjandanum gerðirðu jafntefli þar? Það er ekki hægt að útskýra það. En það gerðist og þú verður að rísa á fætur,“ sagði Arteta. „Viðbrögð strákanna voru frábær. Það kom mér ekki á óvart hvað þeir gerðu í dag því ég er með þeim á hverjum degi og veit hversu mikið þá langar þetta.“ Gyökeres skoraði tvívegis í dag og Arteta jós hann lofi eftir leikinn. „Hann var framúrskarandi góður og hefur sýnt takta í þessa átt í síðustu leikjum. Frammistaða hans í heildina var ótrúleg,“ sagði Spánverjinn. Eze skoraði einnig tvö mörk í dag og hefur alls skorað fimm mörk í deildarleikjunum tveimur gegn Tottenham í vetur. Hann skoraði þrennu í fyrri leiknum sem Arsenal vann einnig 4-1. „Þetta er ótrúlegt. Hann mundi sennilega vel eftir þessu og hafði þessa trú. Ég er mjög ánægður því hann reynir virkilega að aðlagast leikstíl okkar og öfugt. Hann spilaði mjög vel í dag,“ sagði Arteta. Hann segir að Arsenal sé tilbúið að berjast um titilinn allt til loka tímabilsins. „Þetta er enska úrvalsdeildin. Þetta ræðst undir lokin. Það er ljóst. Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni er langt maraþon,“ sagði Arteta að lokum. Viðtalið við Arteta má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira