Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 21:07 Punch og Djungelskog-apinn á góðri stundu. Getty Japanski makakíapinn Punch, sem býr í dýragarði utan Tókýó, er einn frægasti api heims um þessar mundir. Myndskeið af honum og órangútantuskudýri úr Ikea, óvæntu tvíeyki, dreifast sem eldur í sinu um netmiðla.
Punch var yfirgefinn af móður sinni þegar hann fæddist í dýragarðinum í Ichikawa fyrir sjö mánuðum. Á fyrstu mánuðunum eru makakíapar háðir mæðrum sínum og finna öryggi og öðlast styrk með því að halda í feld þeirra. Þegar áhyggjufullur gestur greindi starfsmönnum frá högum Punch var gripið til þess örþrifaráðs að sjá apanum fyrir förunaut. „Punch átti engan að til þess að halda í. Við prófuðum að gefa honum upprúllað handklæði og leyfðum honum að prófa að halda í alls kyns leikföng.“ Djungelskog-apinn fylgir Punch hvert sem hann fer. Getty Eitt leikfangið reyndist betri en önnur og úr varð fallegt samband Punch og órangútansins Djungelskog, sem kemur úr hillum sænsku húsgagnaverslunarinnar Ikea. Myndskeið af daglegu lífi Punch, sem virðist finna huggun og hughreystingu í þessum nýja vini sínum, er að finna á víð og dreif um netmiðlana. Þá hefur dúóið ratað á marga af stærstu erlendu netmiðlunum undanfarna daga. Líkt og önnur dýr eiga apar til að vera vondir við aðra apa. Á myndbandinu hér að neðan, sem netverjar keppast við að deila sín á milli þessa dagana, sést Punch leita í mjúkt tuskudýrið eftir að sambýlisapar hans í dýragarðinum gera honum lífið leitt. Viðkvæmir eru varaðir við efni myndbandsins. Baby macaque Punch was suddenly attacked and ran straight to his plush, clinging to it and shaking for a long time 😢 pic.twitter.com/2K6hV3q9GG— Clown World ™ 🤡 (@ClownWorld) February 19, 2026
Dýr Japan IKEA Grín og gaman Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira