Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Stefán Árni Pálsson skrifar 20. febrúar 2026 14:02 Ronni er átján ára hnefaleikakappi. Ronald Bjarki Mánason hefur vakið mikla athygli í boxheiminum þrátt fyrir ungan aldur. Garpur Ingason Elísabetarson fór með honum í hringinn og spurði hann út í lífið og tilveruna í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi.
Hann hefur núna unnið fimm alþjóðleg mót en fram undan er Norðurlandamótið. „Ég var bara eitthvað að gera ekki neitt. Ég var alltaf bara eitthvað heima, eitthvað að dunda mér eitthvað og spila PlayStation,“ segir Ronald eða Ronni um það hvernig hann lifði lífinu fyrir boxið. „Frændi minn var að boxa og bauð mér að koma og prófa hjá sér. Ég tók tvisvar í viku og var að æfa með honum. Síðan skráði ég mig á grunnnámskeið og byrjaði síðan bara þannig einhvern veginn að æfa á fullu og hélt síðan áfram,“ segir Ronald sem byrjaði að æfa fótbolta á yngri árum en það átti ekki eins vel við hann. Fótboltinn hentaði ekki „Ég var í fótbolta en mér fannst aldrei gaman að æfa. Ég var mjög mikið í því bara að sleppa æfingum og mætti bara í keppni.“ En aftur að boxinu og þegar Ronni tók þátt á sínu fyrsta Íslandsmóti. „Þá er akkúrat frændi minn á landinu og ég þurfti að sýna mig eitthvað. Það var geðveikt að hafa hann þarna. Og þar vann ég og var það jafn góð tilfinning og það var ömurleg tilfinning að tapa.“ Ronni hefur verið með annan fótinn erlendis síðustu ár. „Pabbi minn býr í Vancouver í Kanada. Ég var alltaf bara að æfa í Kanada á sumrin en síðan hef ég líka verið svolítið í Las Vegas og í Danmörku,“ segir Ronni sem er í dag á afreksbraut í Menntaskólanum í Kópavogi. „Sem hjálpar alveg mjög mikið. Þau hafa skilning á þessu öllu. En samt held ég alveg að það muni taka smá tíma fyrir mig að útskrifast,“ segir Ronni sem æfir stíft og í raun alltaf tvisvar á dag. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem einnig er rætt við þjálfara Ronalds. Ronni stefnir að því að verða sá fyrsti hér á landi til að taka þátt á Ólympíuleikunum í hnefaleikum.
Ísland í dag Box Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira