Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 18:00 Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar nam tæplega 36 milljörðum króna í fyrra samkvæmt nýbirtum ársreikningi Landsvirkjunar.
Vakin er athygli á ársreikningnum í fréttatilkynningu á vef Landsvirkjunar. Þar segir að fjárhagur fyrirtækisins sé áfram sterkur, eiginfjárhlutfall sé 64,5 prósent og skuldsetning 1,7-faldur rekstrarhagnaður fyrir afskriftir. Þá segir að stjórn Landsvirkjunar fyrirhugi að gera tillögu á aðalfundi um arðgreiðslu að fjárhæð 165 milljónir bandaríkjadala í ríkissjóð. Áréttað er að arðgreiðslur fyrirtækisins eru reiknaðar í bandaríkjadölum og geta því tekið breytingum eftir gengi en miðað við núverandi gengi nemur greiðslan um 20 milljörðum króna. Að auki skoði stjórnin að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfund í apríl. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir 2025 hafa reynst fyrirtækinu krefjandi, mikið hafi reynt á rekstur aflstöðva á árinu, til að mynda vegna bilana og krefjandi aðstæðna á Þjórsársvæðinu. „Á árinu 2025 var einnig stigið mikilvægt skref inn í framkvæmdatímabil sem verður eitt það umfangsmesta í sögu fyrirtækisins. Framkvæmdir við Vaðölduver gengu vel, undirbúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun héldu áfram og á næstu mánuðum hefjast framkvæmdir vegna stækkunar Sigölduvirkjunar og Þeistareykjavirkjunar,“ er haft eftir Herði í fréttatilkynningu. Fulla ferð áfram Stórt skref var tekið fyrr í vikunni þegar bæði Holtavirkjun í Þjórsá og Skrokkölduvirkjun við Sprengisandsleið voru færðar í orkunýtingarflokk í rammaáætlun með þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi. Það þýðir að svæðin þar eru talin betri til virkjana en aðrir staðir og hægt verður að byrja að rannsaka og sækja um leyfi fyrir uppbyggingu þar. Í samtali við fréttastofu í gær sagðist Hörður fagna tíðindunum en sagði í leið ótrúlegt hversu fáar vatnsaflsvirkjanir komist í gegnum rammaáætlun. Gangi allt vel megi búast við því að framkvæmdir fyrir Holtavirkjun hefjist 2031 og nokkrum árum síðar fyrir Skrokkölduvirkjun.
Landsvirkjun Rekstur hins opinbera Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Sjá meira