Ekki úr lausu lofti gripinn, Daði Ísak Einar Rúnarsson skrifar 18. febrúar 2026 15:02 „Mér finnst nú rétt að halda til haga nokkrum hlutum. Við þurfum að bera saman hverjar þessar bætur eru í dag og lágmarkslaun, og þar munar ennþá auðvitað mjög miklu. Menn geta haft ýmsar skoðanir á því hversu miklu á að muna, en allar áhyggjur af því að hvatinn til að vera á vinnumarkaði sé ekki til staðar er úr lausu lofti gripinn.“ Þetta sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í Silfrinu síðastliðið mánudagskvöldí umræðu um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu eða vísitölu neysluverðs, þ.e. þá vísitölu sem hækkar meira. Þessi orð fjármála- og efnahagsráðherra sem jafnan er vandur virðingu sinni og stígur varlega til jarðar í opinberri umræðu, eru staðleysa og það sem verra er að ráðherra veit betur. Það er ástæða til að hafa áhyggjur. Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og margir ólíkir aðilar koma að þeim. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun. Þar að auki eru hóparnir sem nýta þau afar ólíkir hvað varðar eignir, atvinnumöguleika, fjölskylduaðstæður og aðra þætti. Fyrir vikið er erfitt að fullyrða um kerfið og skjólstæðinga þess í heild sinni. Umræða um hvata til vinnu snýr fyrst og fremst að öðrum af tveimur megin hópum skjólstæðinga almannatrygginga, þ.e. örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum. Um helmingur þess hóps fær greiddan hluta af sínum lífeyri frá lífeyrissjóðum en hinn helmingurinn reiðir sig um það bil eingöngu á eigin tekjur og almannatryggingar. Stórir hópar með hærri ráðstöfunartekjur eftir starfsorkutap Byrjum á stöðunni í dag eins og hún er eftir að miklar kerfisbreytingar komu til framkvæmda 1. september síðastliðinn. Greiningar á stöðu þeirra sem safnað hafa réttindum á vinnumarkaði í gegnum lífeyrissjóði og njóta því greiðslna bæði þaðan og frá almannatryggingum benda til þess að grunnréttindasöfnun sé að meðaltali á bilinu 85-138% af fyrri tekjum þegar fólk verður fyrir starfsorkutapi. Hlutfallið er misjafnt eftir starfsstéttum og tekjum. Það verður sennilega ekki hjá því komist að fámennur hópur neðst í tekjustiganum (t.d. fólk sem var í hálfu starfi) fái hærri bætur en fyrri tekjur á vinnumarkaði. Vandamálið er hins vegar hversu stór hópur getur búist við hærri ráðstöfunartekjum eftir starfsorkutap. Einstaklingar allt upp undir meðallaun á vinnumarkaði fá nánast sömu upphæð úr lífeyrissjóðum og almennun bótum almannatrygginga eftir starfsorkutap. Til viðbótar kemur annar stuðningur sem einstaklingar á örorkubótum eiga rétt á, líkt og húsnæðisstuðningur eða sérstakar barnalífeyrisgreiðslur. Þá þarf einnig að taka tillit til þess kostnaðar sem alla jafna hlýst af því að sækja vinnu s.s. vegna aksturs á vinnustað og annarra þátta. Til viðbótar eiga ákveðnir hópar rétt á auknum greiðslum úr lífeyrissjóðum vegna bráðabirgðaákvæðis um víxlverkun almannatrygginga og lífeyrissjóða, en það leiðir til þess að í einhverjum tilvikum fá einstaklingar greitt úr lífeyrissjóði umfram fyrri tekjur, þ.e. áður en til starfsorkutaps kom. Það er því sérstakt áhyggjuefni, þegar allt er tekið saman, hversu stór hópur - sennilega nálægt helmingi vinnumarkaðar - getur vænst aukinna ráðstöfunartekna eftir orkutap. Hvað varðar þá sem ekki hafa safnað sér örorkulífeyrisréttindum á vinnumarkaði má segja að staða þeirra sé heilt yfir lakari, eins og við er að búast. Aftur á móti birtu Samtök skattgreiðenda nýlega áhugaverða greiningu á réttindum örorkulífeyrisþega þar sem litið er til ýmissa annarra bóta og stuðningsúrræða sem öryrkjum bjóðast til viðbótar við örorkubæturnar sjálfar. Greiningin lítur á sviðsmyndir sem byggja á ólíkum fjölskylduaðstæðum fólks, en af 10 sviðsmyndum fela 8 í sér steríótýpískar fjölskylduaðstæður á Íslandi. Allar sviðsmyndir nema ein virðast sýna að einstaklingar eða hjón á örorku, þegar tekið hefur verið tillit til sérstaks húsnæðis og barnastuðnings, hafa meiri ráðstöfunartekjur eftir húsnæðiskostnað heldur en einstaklingur á miðgildislaunum (753 þúsund í launatekjur á mánuði). Það er auðvitað enn þannig að tilteknir hópar innan kerfisins – þeir sem eru á lægstu grunnbótunum, eiga ekki réttindi í lífeyrissjóði og mögulega falla á milli annarra kerfa – heyja harða lífsbaráttu og mögulega er nauðsynlegt að koma frekar til móts við þá, en í dag eru þessir hópar orðnir nokkuð afmarkaðir. Þá þarf einnig að taka fram að það lifir enginn í ríkidæmi á örorkubótum og fólk í þeim þjóðfélagshópi glímir oft við flókin og fjölþætt vandamál óháð tekjum sem gerir lífsbaráttuna á tíðum afskaplega krefjandi. Það er auðvelt að hafa samúð með þessum þjóðfélagshópi og enginn vill að hann hafi það slæmt. Launavísitölufrumvarpið og áhrif þess Það er engu að síður í þessu samhengi vinnumarkaðar og bóta sem frumvarp um launavísitölutengingu bóta almannatrygginga er lagt fram. Í aðstæðum þar sem verulega er farið að draga úr efnahagslegum hvata til vinnu meðal stórra þjóðfélagshópa. Það er ekki mikið svigrúm – eiginlega ekkert svigrúm – til að hækka bætur umfram laun eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Þá er ónefndur skaðinn af því að setja á sjálfstýringu hækkanir svo stórs hluta ríkisútgjalda, eða um 20% af öllum útgjöldum ríkisins. Það gleymist einnig oft að hér er aðeins um að ræða reglubundnar almennar hækkanir bóta en ekki allar hækkanir bóta. Á undanförnum árum og áratugum hafa til viðbótar við almennar hækkanir verið framkvæmdar kerfisbreytingar á nokkurra ára fresti sem hafa jafnan leitt til aukinna hækkana á bótum að meðaltali. Launavísitölutengingin, með tvöföldum lás, er því aðeins nýtt gólf í hækkunartakti bóta. Rísum undir ábyrgðinni Þegar horft er til örorkukerfisins í heild sinni er ljóst að bæta verður yfirsýn og gagnaöflun svo hægt sé að ræða af meiri skynsemi um málefnið. Heppilegt væri að tryggingum og öðrum úrræðum væri komið á færri hendur til þess að þeir sem fara með málaflokkinn átti sig betur á samspili ólíkra þátta kerfisins. Þó gögnin séu ekki fullkomin, benda þau engu að síður skýrt til þess að verulega hafi dregið úr hvata til vinnu. Áhyggjur Samtaka atvinnulífsins og annarra af launavísitölufrumvarpinu og samspili vinnumarkaðar og bóta í stærra samhengi eru því svo sannarlega ekki úr lausu lofti gripnar. Það er ábyrgðarlaust að skella skollaeyrum við varnaðarorðum og gera lítið úr stöðunni, jafnvel þó það sé pólitískt hentugt. Við búumst við meiru af fjármála- og efnahagsráðherra. Höfundur er forstöðumaður málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ísak Einar Rúnarsson Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Sjá meira
„
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun