„Þessi medalía er fyrir allar mömmurnar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. febrúar 2026 07:00 Elana hafði beðið heillengi eftir þessum gullverðlaunum. Julian Finney/Getty Images Elana Meyers Taylor hafði unnið allt sem hægt er að vinna á sínum ferli í bobbsleðanum, nema gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Gullverðlaunin skiluðu sér svo loksins í ár, þegar Elana er orðin rúmlega fertug og tveggja barna móðir.
Þetta var í fimmta sinn sem Elana tekur þátt í bobbsleðakeppni á Vetrarólympíuleikunum og þar tókst henni að bæta gullmedalíu í safn sem taldi þrjú silfurverðlaun og tvö bronsverðlaun fyrir. „Þetta sýnir ykkur bara… haldið áfram að berjast. Þetta er ótrúlega þýðingarmikið, fyrir mig, liðið mitt og alla í kringum mig“ sagði Elana, sem varð í leiðinni sigursælasta bobbsleðakona sögunnar. Elana tók son sinn í fangið eftir keppni.getty Hún hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari á sínum ferli og skráð nafn sitt margsinnis á spjöld sögunnar, sem sigursælasta svarta konan á Vetrarólympíuleikunum og sem sigursælasta konan frá Bandaríkjunum til dæmis. Þegar úrslitin urðu ljós féll Elana niður á hnén og hélt utan um börnin sín tvö. „Þessi medalía er fyrir allar mömmurnar sem gátu kannski ekki látið drauma sína rætast og létu börnin breyta draumunum. Þær héldu mér gangandi og þær hafa stutt mig á erfiðu tímunum.“ Ekki einfalt fjölskyldulíf Elana er gift fyrrum bobbsleðamanninum Nic Taylor og fjölskyldulífið er ekki einfalt á þeim bænum því yngri sonurinn er heyrnarlaus og eldri sonurinn er með Downs heilkennið. „Börnin mín hafa fært miklar fórnir fyrir mig og það er svo margt fólk sem hefur stutt mig á leiðinni að þessari gullmedalíu. Ég hef verið með margar barnfóstrur í gegnum tíðina og þær hafa allar lagt inn svo mikla vinnu til að hjálpa börnunum mínum og eiginmanninum. Ég get ekki lýst því hversu mikið það þýðir fyrir mig, eða hversu marga þurfti til að vinna þessi verðlaun.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira