Segir Alþjóðaólympíunefndina „í raun samseka“ rússneskum glæpum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 07:47 Vladyslav Heraskevych með hjálminn heimsfræga sem kostaði hann þátttökurétt á Vetrarólympíuleikunum. Getty/Andrew Milligan Úkraínski sleðakappinn Vladyslav Heraskevych er kominn aftur til Úkraínu eftir að hafa verið dæmdur úr leik á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hann segir Alþjóðaólympíunefndina (IOC) „í raun samseka“ rússneskum glæpum.
Í færslu á X hefur hann birt myndband frá Kænugarði. Í færslunni gagnrýnir hann Alþjóðaólympíunefndina harðlega. „Í hverri viku snúa sífellt fleiri rússneskir íþróttamenn aftur á alþjóðlega keppnisvelli, á meðan Úkraínumenn halda áfram að búa við mannúðarslys af völdum rússneskra árása. Þegar IOC auðveldar rússneskan áróður verða samtökin í raun samsek í þessum glæpum,“ skrifar Heraskevych. „Styðjið Úkraínu í rétti sínum til að lifa,“ heldur hann áfram. Heraskevych var dæmdur úr leik skömmu áður en hann átti að taka þátt í magasleðakeppninni á Ólympíuleikunum í síðustu viku. Ástæðan var sú að hann vildi keppa með hjálm sem sýndi úkraínska íþróttamenn sem fallið hafa í stríði Rússlands gegn Úkraínu. Það taldi Alþjóðaólympíunefndin vera brot á reglum. Heraskevych notaði hjálminn á sex opinberum æfingum á Ólympíuleikunum en fékk síðar skilaboð frá Alþjóðaólympíunefndinni um að hann yrði ekki leyfður í keppninni. Á Ólympíuleikunum hafa þrettán rússneskir og sjö hvítrússneskir íþróttamenn fengið grænt ljós til að keppa undir svokölluðu hlutleysi. Alþjóðaólympíunefndin útilokaði fyrst alla íþróttamenn frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu árið 2022 en opnaði síðar fyrir þátttöku undir hlutlausum fána. Попри відсутність світла, вдома - найкраще ❤️🩹Despite the blackouts, home is still the best place ❤️🩹Щотижня дедалі більше російських атлетів повертаються на міжнародні арени, тоді як українці продовжують жити в умовах гуманітарної катастрофи, спричиненої російськими обстрілами.… pic.twitter.com/nnFKyNwkfb— Vladyslav Heraskevych OLY (@heraskevych) February 16, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Sjá meira