Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 15:03 John Rooney, knattspyrnustjóri Macclesfield, í viðtali hjá eldri bróður sínum Wayne Rooney þegar Macclesfield sló út bikarmeistara Crystal Palace. Getty/Simon Stacpoole John Rooney, bróðir fyrrverandi fyrirliða enska landsliðsins, Wayne, kom nafni sínu á kortið með ótrúlegum sigri Macclesfield á Crystal Palace í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í síðasta mánuði og hann fær annað tækifæri gegn úrvalsdeildarliði þegar Brentford heimsækir Moss Rose-leikvanginn í kvöld.
Þetta hefur verið viðburðarík byrjun á stjóraferlinum hjá hinum 35 ára gamla Rooney, sem tók við af Robbie Savage í stjórastólnum hjá Macclesfield í sumar eftir að hafa verið hluti af hópnum sem vann Northern Premier League-deildina á síðasta tímabili. „Ég er nýbyrjaður“ „Ég er nýbyrjaður í stjórastéttinni og hef metnað til að stýra liði á eins háu stigi og ég get,“ sagði Rooney. „Ef það væri ekki metnaður minn væri ég í röngu hlutverki en vonandi get ég ýtt Macclesfield áfram á þann stað sem við teljum okkur geta náð. Við eigum langa vegferð fyrir höndum hér og þetta er félag sem stefnir í rétta átt. Ég vil stýra liði á eins háu stigi og mögulegt er og vonandi getur það verið með þessu félagi,“ sagði Rooney. Rooney gekk til liðs við unglingaakademíuna gamla Macclesfield Town eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Everton og hóf þar leikmannaferil sem innihélt meðal annars dvöl hjá New York Red Bulls, Orlando City, Chester, Wrexham, Barrow og Stockport, áður en hann sneri aftur á Moss Rose árið 2023. „Hélt ég að þetta myndi gerast svona hratt?“ Hann lýsti yfir áhuga á stjórastarfinu sumarið 2024 þegar Savage tók við því í staðinn og greip tækifærið þegar Walesverjinn fór til Forest Green í byrjun júlí. „Hélt ég að þetta myndi gerast svona hratt?“ sagði Rooney. „Líklega ekki, en þegar tækifærið gafst vildi ég grípa það báðum höndum því maður veit aldrei hvað er handan við hornið eða hvenær starf losnar.“ Þótt enska bikarkeppnin hafi vakið alþjóðlega athygli á Macclesfield er aðalmarkmið Rooney að halda Macclesfield áfram upp deildarpýramídann. Frá sigrinum á Palace hafa þeir unnið fimm af sex leikjum sínum í National League North og komist í umspilssæti. Tekið öllu með jafnaðargeði „Við höfum tekið öllu með jafnaðargeði og ég hef ekki stigið til baka til að líta yfir allt sem við höfum áorkað því við höfum önnur markmið líka og við þurfum að halda áfram með þau,“ sagði hann. Stjóraferill Rooney er ungur en hann hefur þegar þurft að takast á við verkefni sem enginn stjóri ætti nokkurn tíma að þurfa að horfast í augu við. Framherjinn Ethan McLeod, aðeins 21 árs, lést í bílslysi á leið heim af leik í desember og Rooney hringdi persónulega í hvern einasta leikmann í hópnum til að færa þeim fréttirnar. Deildi búningsklefa með þeim fyrir stuttu Meirihluti þessara leikmanna voru liðsfélagar Rooney á síðasta tímabili og hann hefur þakkað þeim fyrir hvernig þeir hafa aðlagast því að hafa hann sem stjóra sinn. „Að koma inn og stýra leikmönnum sem ég spilaði með á síðasta ári og deildi búningsklefa með getur stundum verið mjög krefjandi en strákarnir hafa hjálpað mér í þeim efnum og þeir hafa staðið með mér þegar frammistaða okkar hefur dalað lítillega,“ sagði Rooney. „Hægt er að hrósa strákunum, þeir hafa verið ótrúlegir fyrir mig,“ sagði Rooney. Leikur Macclesfield og Brentford hefst klukkan 19.30 í kvöld og verður sýndur beint á SÝN Sport Viaplay.
Enski boltinn Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Fleiri fréttir Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Sjá meira