Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Kristján Már Unnarsson skrifar 14. febrúar 2026 07:57 Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, sýnir TF-HIS, flugvél Björns Pálssonar sem lagði brautina að sérhæfðu sjúkraflugi á Íslandi. Egill Aðalsteinsson Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins.
Í kvöldfréttum Sýnar og þætti Flugþjóðarinnar um litlu flugfélögin vekur Hörður Guðmundsson athygli okkar á þætti lítillar einshreyfils stélhjólsvélar í flugsögu Íslands, Cessna 180, en hann byrjaði með slíka vél hjá Flugfélaginu Erni á Ísafirði árið 1970. „Þessar vélar brutu blað í íslenskri flugsögu á þeim tíma þegar notkun sjóflugvéla er að minnka. Þá eru þessar vélar að koma inn og það verða fleiri og fleiri litlir lendingarstaðir hringinn í kringum landið,“ segir Hörður en hér má sjá sjö mínútna upphafskafla þáttarins: Þegar við spyrjum safnstjóra Flugsafns Íslands, Steinunni Maríu Sveinsdóttur, hvern hún telji merkasta dýrgrip safnsins, þá nefnir hún TF-HIS, Cessnu 180, sjúkraflugvél Björns Pálssonar. „TF-HIS stendur fyrir svo margt í íslenskri flugsögu. Þannig að ef ég ætti að velja svona einn, ef þú myndir snúa upp á höndina á mér, þá myndi ég segja TF-HIS.“ Björn Pálsson sjúkraflugmaður við TF-HIS.Flugsafn Íslands/Minjasafnið á Akureyri „Þessi flugvél er notuð til þess að bjarga fólki í neyð á þeirra erfiðustu stundum. Þegar Björn Pálsson sjúkraflugmaður fer á henni út um allt land, og meðal annars til Grænlands líka, til þess að sækja fólk. Þá er þessi flugvél komin til bjargar,“ segir Steinunn en hér má sjá tveggja mínútna frétt Sýnar: Hún segir Björn Pálsson hafa keypt flugvélina árið 1953 í samvinnu við Slysavarnafélag Íslands. Konur í Slysavarnafélaginu hafi safnað fé og bakað kökur fyrir kaupverðinu. Hið íslenska steinolíufélag hafi styrkt kaupin og fengið stafina TF-HIS á vélina. TF-HIS varð einnig til þess að flugvöllum fjölgaði mjög. Þeir Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri og Björn fóru á henni um landið til að leita uppi lendingarstaði því allar sveitir vildu eiga möguleika á sjúkraflugi. „Björn Pálsson, hinn þekkti sjúkraflugmaður, var einna fyrstur með svona vél. Tryggvi Helgason á Akureyri, eða bróðir Tryggva, hann sem fórst í Vaðlaheiði, þeir lögðu svona brautina og fóru vítt og breitt um landið og mældu út litla staði til að lenda á,“ segir Hörður. Hörður Guðmundsson við einshreyfils stélhjólsvél af gerðinni Cessna 185, sem er öflugri útgáfa af Cessna 180.Egill Aðalsteinsson Og það var samskonar vél sem Kolbeinn Ingi Arason flaug þegar hann hóf störf hjá Flugfélagi Austurlands á Egilsstöðum árið 1975. „Þetta var yndisleg flugvél og hún var mjög góð náttúrulega í þessu skaki, hún er öflug vél. Þetta er ein af fáum vélum sem eru komnar af teikniborðum þannig að þær geta borið jafnþyngd sína innvortis eins og þær eru þungar,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn Ingi Arason flaug svona vél hjá Flugfélagi Austurlands.Egill Aðalsteinsson „Þetta er alveg frábært flugtæki. Ég held að það hafi ekkert í sjálfu sér tekið þessu fram, flugeðlisfræðilega séð,“ segir Hörður. „Þetta er fínn vængur á þessari flugvél og passar svo vel við þessar aðstæður sem við erum með,“ segir Ómar Ólafsson flugstjóri sem flaug TF-HIS þegar hann vann hjá Birni Pálssyni. Ómar Ólafsson starfaði sem flugmaður hjá Birni Pálssyni.Egill Aðalsteinsson „Cessna 180 var meira að segja notuð í áætlunarflugi þótt hún tæki ekki nema þrjá farþega,“ segir Hörður. „Þessi getur tekið sex,“ segir Kolbeinn framan við Cessnu 185, sem er öflugri. „Og þessi bar mjög vel sex farþega með öllum farangri.“ Áskrifendur geta séð alla þætti Flugþjóðarinnar í heild á streymisveitunni Sýn+. Hér má sjá kynningarstiklu þriðju seríu Flugþjóðarinnar:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Akureyrarflugvöllur Söfn Tengdar fréttir Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50 Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40 Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Nýir og fyrirferðarmiklir safngripir eins og þyrlur og flugvélaskrokkar kalla á stækkun Flugsafns Íslands á Akureyri. Safnið er það eina viðurkennda hér á landi sem hefur það meginhlutverk að varðveita íslenska flugsögu. 27. apríl 2025 22:22 Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30 Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi. 2. október 2023 21:33 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira
Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47
Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40
Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Nýir og fyrirferðarmiklir safngripir eins og þyrlur og flugvélaskrokkar kalla á stækkun Flugsafns Íslands á Akureyri. Safnið er það eina viðurkennda hér á landi sem hefur það meginhlutverk að varðveita íslenska flugsögu. 27. apríl 2025 22:22
Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30
Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi. 2. október 2023 21:33