Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 00:35 Stjórnandi gistiheimilis í Vang Vieng í Laos heldur á vodkaflösku á bar þess. Áströlsku stúlkurnar dvöldu þar. AP/Anupam Nath Fjölskyldur tveggja ástralskra unglingsstúlkna sem létust úr tréspíraeitrun eftir að hafa drukkið metanólblandað áfengi á hóteli í Laos árið 2024 segjast hafa orðið fyrir áfalli þegar þær fréttu að starfsfólkið sem bar ábyrgð á drykkjunum hafi hlotið sekt upp á einungis 185 Bandaríkjadali vegna málsins.
Bianca Jones og Holly Morton-Bowles voru meðal gesta á gistihúsi á ferðamannastaðnum Vang Vieng í Laos í nóvember 2024 sem drukku metanólblandað áfengi með þeim afleiðingum að þeir veiktust af metanóleitrun og létust. Hin látnu, sem voru sex talsins, komu frá Ástralíu, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum. Sjá einnig: Eigandi gistiheimilis handtekinn í tengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos handtóku á sínum tíma eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföllin. Litlar upplýsingar var að fá um málshöfðanir að því er erlendir fjölmiðlar komust næst. Shaun Bowles og Mark Jones, feður áströlsku stúlknanna, segja í samtali við ástralska miðilinn 9News, sem Guardian hefur eftir, að þeir hafi þurft að reiða sig á hópspjall fjölskyldna allra hinna látnu fyrir fréttir af dómsmálum tengdum atvikinu. Bresk stjórnvöld sáu þeim fyrir upplýsingagjöfinni. Vissu ekki af dómsmálinu Í janúar fengu fjölskyldurnar fréttir af því að tíu manns tengdir gistihúsinu hafi verið sakfelldir af dómstól í Laos vegna málsins. Þeir hafi hlotið sekt upp á 185 dali, eða tæplega 23 þúsund krónur, og skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að eyða sönnunargögnum. Feðurnir segjast í samtali við miðilinn í áfalli yfir tíðindunum, þrátt fyrir að seinna hafi komið í ljós að dómsmálið sneri einungis að andláti eins af sex fórnarlömbunum, bandarísks ferðamanns. Þeir segjast ráðþrota yfir því hvernig þeir geta náð fram réttlæti fyrir laoskum dómstólum og biðla til ástralskra yfirvalda að koma þeim til hjálpar. „Við höfum engu sambandi náð við laosk stjórnvöld. Við höfðum ekki einu sinni hugmynd um að réttarhöldin væru í gangi,“ sagði Bwoles við 9News. Utanríkisþjónustan í Ástralíu hefur síðan beðist afsökunar á aðgerðarleysi í máli stúlknanna tveggja og heita því að leggja sitt af mörkum til að ná fram réttlæti í málinu. Meðal látnu var hin 21 árs gamla Freja Vennervald Sørensen frá Danmörku, en í september hugðist danska lögreglan hefja frekari rannsókn á málinu.
Laos Ástralía Erlend sakamál Tengdar fréttir Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Foreldrar hinnar 21 árs gömlu Freja Vennervald Sørensen sem lést í síðasta mánuði í Laos úr metanól-eitrun segjast vilja halda sögu dóttur sinnar á lofti og þannig vara aðra við og koma í veg fyrir að þeir hljóti sömu örlög og hún og vinkona hennar. 2. desember 2024 16:12 Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos hafa handtekið eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföll ferðamanna af völdum metanóleitrunar. 22. nóvember 2024 08:44 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Foreldrar hinnar 21 árs gömlu Freja Vennervald Sørensen sem lést í síðasta mánuði í Laos úr metanól-eitrun segjast vilja halda sögu dóttur sinnar á lofti og þannig vara aðra við og koma í veg fyrir að þeir hljóti sömu örlög og hún og vinkona hennar. 2. desember 2024 16:12
Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos hafa handtekið eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföll ferðamanna af völdum metanóleitrunar. 22. nóvember 2024 08:44