Er verið að eyðileggja laxveiðiár landsins? Kristján Ingimarsson skrifar 13. febrúar 2026 07:00 Fyrir nokkrum dögum síðan kom í ljós skýrsla sem gerð var í kjölfar erfðarannsóknar Matís á löxum í Laxá í Aðaldal. Niðurstöður skýrslunnar ættu að opna augun hjá þeim sem er annt um náttúru Íslands og þá laxastofna sem hér eru en mögulega er smátt og smátt búið að vera að eyðileggja laxveiðiár á Íslandi síðustu áratugi með seiðasleppingum. Skýrslan er nú aðgengileg á heimasíðu MATÍS. Umfangsmikil meint fiskirækt (einkum seiðasleppingar) hefur farið fram í Laxá í Aðaldal í áratugi en uppruni undaneldisfisksins er óþekktur. Frá 1984 hafa Á HVERJU ÁRI að meðaltali verið dælt í ána rúmlega 70.000 seiðum eða 42 þúsund smáseiðum og tæplega 31 þúsund gönguseiðum. Þróunin í laxveiðinni í Laxá hefur að mestu verið beint niðurávið síðan á áttunda áratug síðustu aldar, var mest 3063 laxar árið 1978 en minnst 264 laxar árið 2020 (Angling.is). Áin var áður þekkt fyrir mjög hátt hlutfall stórlaxa, um 70%, en árið 2024 var það hlutfall komið niður í 25% (G. Guðbergsson, 2025). Árið 1980 greindust aðeins rúm 70% laxanna í sýninu af uppruna Laxár í Aðaldal en 30% eru raktir af öðrum uppruna, flestir úr Hofsá og Selá í Vopnafirði og síðan einkum úr stofnum áa á Norðurlandi (að vísu 1 úr Laugardalsá og 1 úr Grímsá). Áfram var seiðum sleppt í ána og árið 2023 var aðeins um 25% laxanna af stofni Laxár í Aðaldal, annar tæpur fjórðungur úr Hofsá, um 15% úr Selá, rúm 7% úr Laugardalsá (í Ísafjarðardjúpi), aðrir einkum úr ám á Norðurlandi. Oft hefur verið bent á að ein helsta ógnin við íslenska laxastofna er veiði eins og mögulega er staðfest í þessari skýrslu. Þarf mögulega að friða árnar fyrir veiði og ónáttúrulegu inngripi í árnar? Hér á landi hafa verið stundaðar seiðasleppingar í áratugi í allar helstu og þekktustu laxveiðiár landsins, sem þó hafa hreint ekki haft þörf fyrir þær út frá raunverulegum fiskræktarsjónarmiðum eða til verndar laxastofnanna heldur hefur það verið gert í þeim tilgangi að auka veiði og tekjur af veiðileyfasölu. Út frá niðurstöðum skýrslunnar og þeirri staðreynd að stangveiði hefur dregist saman frá áttunda áratugnum má ætla að seiðasleppingar hafi fremur aukið vandann En veiðileyfin halda samt áfram að hækka í verði. Fyrirsjáanlegt er að samtökin og nánir stuðningsaðilar veiðiklúbbanna muni leitast við að draga úr áhrifum skýrslunnar og gera lítið úr niðurstöðum hennar, þar sem þær falla hvorki að þeirra málflutningi né hagsmunum þeirra sem fjármagna starfsemina. Samtök eins og IWF sem gefa sig út fyrir að vera náttúrverndarsamtök vilja gera lítið úr þessari rannsókn enda virðist rótgróin afstaða samtakanna, takmarka getu þeirra til að greina eða viðurkenna þá þróun sem átt hefur sér stað frá áttunda áratugnum. Hví sér þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu á kannski ágætlega við í þessu samhengi. Eru þessi samtök kannski ekki svo mikil náttúrverndarsamtök en vilja frekar vernda veiðiréttarhafa? Eru þau þá í blindni sinni verstu óvinir íslenskra laxa? Stjórnar veiðileyfaelítan kannski fjölmiðlunum og þá umræðunni? Og stjórnar græðgi umræðunni frekar en náttúruvernd? Þetta eru spurningar sem hver og einn verður að svara fyrir sig. Höfundur er fiskeldisfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Lax Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun