Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 06:32 Íslandsvinurinn Sir Jim Ratcliffe hefur verið harðlega gagnrýndur eftir nýlegt viðtal. Getty/Nicolò Campo Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði ummæli Sir Jim Ratcliffe um að innflytjendur hefðu „numið land“ í landinu vera „móðgandi og röng“ og krafðist þess að meðeigandi Manchester United bæðist afsökunar.
Ratcliffe var harðlega gagnrýndur á miðvikudag eftir viðtal við Sky News þar sem hinn 73 ára gamli kvartaði yfir áhrifum gríðarlegs fjölda innflytjenda sem kæmu til landsins. Móðgandi og rangt Ummælin leiddu til ávítunar frá Starmer og vöktu reiði meðal fjölda stuðningsmannahópa United. Forsætisráðherrann birti færslu á X: „Móðgandi og rangt. Bretland er stolt, umburðarlynt og fjölbreytt land. Jim Ratcliffe ætti að biðjast afsökunar.“ Offensive and wrong.Britain is a proud, tolerant and diverse country.Jim Ratcliffe should apologise.https://t.co/7mSnVV33oo— Keir Starmer (@Keir_Starmer) February 11, 2026 Fyrr um daginn sagði Ratcliffe við Sky News: „Það er ekki hægt að reka hagkerfi með níu milljónir manna á bótum og gríðarlegan fjölda innflytjenda sem koma inn.“ „Ég meina, Bretland hefur verið numið. Þetta kostar of mikla peninga. Bretland hefur verið numið af innflytjendum, er það ekki?“ Fordæmt af stuðningsmannaklúbbi Viðtalið var umsvifalaust fordæmt af stuðningsmannaklúbbi múslíma hjá Manchester United (MUMSC) fyrir að innihalda „orðalag sem oft er notað í málflutningi öfgahægrimanna.“ Í yfirlýsingu frá MUMSC sagði: „Manchester United er alþjóðlegt félag byggt á fjölbreytileika – á leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum af öllum uppruna, trú og þjóðerni. Styrkur félagsins okkar, og landsins okkar, liggur í þeim fjölbreytileika. Við stöndum með öllum samfélögum sem hafna kynþáttafordómum, gyðingahatri, íslamsfóbíu og hatri í öllum sínum myndum, og við köllum eftir forystu sem sameinar frekar en sundrar.“ 🚨 MUMSC statement regarding recent comments by Sir Jim Ratcliffe.Read below. pic.twitter.com/mIgxPdKzWB— MUMSC (@mum_sc) February 11, 2026 Stuðningsmannasamtök Manchester United sögðu: „Ummæli frá yfirstjórn félagsins ættu að auðvelda þátttöku allra, ekki gera hana erfiðari.“ Ekkert pláss fyrir skoðanir Ratcliffe Samtökin Kick It Out, sem berjast gegn mismunun, sögðu í yfirlýsingu að það væri „ekkert pláss“ fyrir skoðanir Ratcliffe í enskum fótbolta. „Ummæli Sir Jim Ratcliffe eru svívirðileg og mjög sundrandi á tímum þegar fótbolti gerir svo mikið til að sameina samfélög,“ sagði í yfirlýsingunni. „Svona orðalag og forysta á engan stað í enskum fótbolta og við teljum að flestir stuðningsmenn séu sammála.“
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira