Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Aron Guðmundsson skrifar 11. febrúar 2026 07:02 Sturla Holm Lægreid eftir að hafa unnið til bronsverðlauna á Vetrarólympíuleikunum. Vísir/Getty Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni.
Sturla vann til bronsverðlauna í gær í skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum og allt virtist leika í lyndi. Það gerði það hins vegar ekki og viðtal við Norðmanninn eftir keppni tók óvænta stefnu. Þar viðurkenndi Sturla að hann hefði verið ótrúr kærustu sinni og haldið framhjá henni þremur mánuðum fyrir Vetrarólympíuleikana. „Það er manneskja sem mig langar að deila þessu með, sem er líklega ekki að horfa í dag. Fyrir sex mánuðum síðan hitti ég ást lífs mín. Fallegustu og góðhjörtuðustu manneskju í heimi. Fyrir þremur mánuðum síðan gerði ég stærstu mistök lífs míns og hélt framhjá henni,“ sagði Sturla í viðtalinu umtalaða í gær. Viðtalið og það sem kom fram þar er þess valdandi að úrslitin í skíðaskotfiminni eru ekki á flestra vörum og umrætt viðtal hefur vakið athygli víða um heim. Það varð fljótt að fyrstu frétt á breska miðlinum Daily Mail og fyrirsögnin í flennistórum stöfum: Medal of dishonour eða medalía vanvirðingar á íslenskri tungu. Í danska miðlinum TV 2 er rætt við norsku skíðagoðsögnina Ole Einar Bjørndalen sem þekkir það heldur betur að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Ole Einar er allt annað en sáttur með samlanda sinn, Sturlu. „Á ég að vera hreinskilinn?“ svaraði Ole Einar eftir að fréttamaður TV 2 hafði spurt hann hvað honum finndist um viðtalið við Sturlu og opinberun hans. „Mér finnst þetta mjög eigingjarnt af honum. Þetta er sjokkerandi. Norðmaður vann til gullverðlauna í greininni og Sturla nældi í sína fyrstu bronsmedalíu. Það að hann hafi haldið fram hjá kærustu sinni er hans vandamál,“ sagði Ole Einar en það var Norðmaðurinn Johan-Olav Botn sem vann skíðaskotfimina. „Í dag eigum við að fagna árangri Botn en ekki velta okkur upp úr vandræðum í ástarlífi Sturlu.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Noregur Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sjá meira