„Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Árni Sæberg skrifar 10. febrúar 2026 10:00 Daði Már ávarpaði ráðstefnu SFF og Nasdaq í morgun. Anton Brink/SFF/Nasdaq Fjármála- og efnahagsráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar að stuðla að einföldun regluverks og að það eigi að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta sparnaði sínum á Íslandi, enda hafi þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði ýmislegt jákvætt í för með sér. „Við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir.“
Þetta var meðal þess sem kom fram í ávarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á ráðstefnu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Nasdaq Iceland um möguleikann á upptöku fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi. Beina útsendingu frá ráðstefnunni má sjá í spilaranum hér að neðan: Hélt sig á mottunni „Ég er hér til að ræða mál sem snertir okkur öll, sparnað heimila og hvernig við tryggjum að honum sé ráðstafað af ábyrgð og á sem skilvirkastan hátt. Ég skal viðurkenna að síðast þegar ég veitti fjárfestingarráðgjöf féll það í heldur grýttan jarðveg. Ég ætla að halda mig fastar á mottunni að þessu sinni en ætla engu að síður að endurtaka það sem ég sagði í aðdraganda sölu ríkisins á Íslandsbanka. Ég held að það sé afar jákvætt að það sé almenn þátttaka í hlutabréfaviðskiptum og að fólk þurfi að kynna sér þann kost betur,“ sagði Daði Már í upphafi ávarps. Þar vísaði hann til þess þegar hann hvatti almenning til að kynna sér útboð ríkisins á eftirstandandi hlut þess í Íslandsbanka og sagði íslenska banka meðal öruggustu fjárfestinga sem til eru, í samtali við Ríkisútvarpið. Grundvallarhagsmunamál Daði Már sagði að einföldun regluverks væri eitt af stóru áherslumálum ríkisstjórnarinnar og eitt persónulegra áherslumála hans sem ráðherra. „Ég hef djúpa sannfæringu fyrir því að það sé grundvallarhagsmunamál, sérstaklega fyrir smáa þjóð, að halda flækjustigi í skefjum. Flókið regluverk er dýrt fyrir heimili, fyrirtæki og hið opinbera. Það er satt alls staðar, en hvergi sannara en fyrir smáa þjóð, enda fylgir því mikill fastur kostnaður. Að hafa flókin kerfi, að hafa eftirlit með flóknum kerfum.“ Það ætti að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta af sparnaði sínum á Íslandi og myndarleg þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði hefði margvísleg jákvæð áhrif í för með sér. Hún bætti verðmyndun, hún yki dýpt og stöðugleika markaðarins og hún styddi við fjármálalæsi og ábyrgð í ákvarðanatöku. Eðlilegt að sporin hræði eftir hrunið Þá sagði Daði Már að fólk hefði tilhneigingu til þess að hugsa um hagkerfið fyrir og eftir efnahagshrunið. „Í því samhengi er gjarnan nefnt að umgjörð bankakerfisins hafi gjörbreyst, ríkisfjármálastefnan orðið ábyrgari, hugað sé að meiri festu af fjármálalegum stöðugleika og svo framvegis, en eitt gleymist gjarnan: Hegðun íslenskra heimila gjörbreyttist.“ Heimilin skulduðu minna, þau verðu minni hluta tekna í neyslu og meira í sparnað og efnahagsreikningar þeirra væru sterkari en nokkru sinni fyrr. „Þannig að þótt hagstjórnin eigi einhvern þátt, þá er þetta einkum árangur fólksins í landinu. Ein birtingarmynd þessarar breyttu hegðunar er fremur dræm þátttaka almennings á hlutabréfamarkaðnum. Sú var að minnsta kosti raunin fram að afar farsælli sölu á eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka. Það er ekki óeðlilegt og við verðum að nálgast það af auðmýkt að sporin hræða.“ Þeir sem upplifðu kreppuna miklu urðu af miklum sparnaði Hann sagðist ekki ætla að halda því fram hvers vegna þetta væri en vísaði þó til rannsókna, sem sýndu fram á sem hefði upplifað kreppuna miklu í kringum 1930 og ætti minningar um hana, hefði haldið sig frá bandaríska hlutabréfamarkaðnum alla ævina á enda. „Sú ráðstöfun reyndist þeim afar kostnaðarsöm, þegar upp var staðið. Þótt hún hafi hljómað skynsamlega og þótt mænan hafi talað fyrir henni, þá sýndi reynslan að þessi kynslóð varð af verulegum fjármunum. Niðurstaðan var reyndar sú að fólkinu gekk langt um verr að byggja upp eignir yfir ævina heldur en þeim sem voru örfáum árum yngri og gengu ekki í gegnum raunir á fjórða áratugnum.“ Einfalda regluverk lífeyrissjóðanna Hið opinbera hefði hlutverk í að stuðla að skilvirkri miðlun sparnaðar og í þeim efnum væri ríkisstjórnin að taka stór skref. Hún ætlaði að einfalda fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóðanna og rýmka magnbundnar takmarkanir sem gilda um fjárfestingar þeirra. „Og við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir. Slíkt ýtir bæði undir fasteignabólu og heldur sparnaði fólks frá öðrum, jafnvel arðbærari kostum sem styðja við verðmætasköpun og framleiðnivöxt.“ Skattafsláttur megi ekki vera sjálfstætt markmið Loks sagði Daði Már að sparnaðarstig og fjárfestingarstig hagkerfisins væri hvort tveggja hátt um þessar mundir. Það væri ekki augljóst þörf væri á opinberu inngripi til þess að auka sparnað á Íslandi. Nema þá að ríkissjóður sjálfur þyrfti að spara meira, en það væri efni í aðra ræðu. Þá væri staðan á Íslandi frábrugðin stöðunni í Evrópu að því leyti að meginþorri sparnaðar heimilanna lægi ekki á innlánsreikningum heldur í lífeyrissjóðum sem fjárfestu í alls konar eignum. „Skattafsláttur til sparifjáreigenda getur heldur ekki verið sjálfstætt markmið fjárfestingarreikninganna. Tækifærin hér á landi felast í því að einfalda líf fólks og miðla sparnaði þjóðarinnar þannig að hann styðji við verðmætasköpun og framleiðnivöxt. Þar fara hagsmunir ríkisstjórnarinnar og stefna hennar og efni þessa fundar algjörlega saman.“
Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Sjá meira