Gleymdi sér síðast og beið í 25 ár með að fagna svona Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 10:01 Hinn fertugi Benjamin Karl vissi nákvæmlega hvernig hann ætlaði að fagna. David Ramos/Getty Images Hinn fertugi Austurríkismaður Benjamin Karl vissi upp á hár hvernig hann vildi fagna, eftir að hafa orðið elstur manna til að vinna einstaklingsgrein á Vetrarólympíuleikum í gær.
Karl keppir á snjóbretti og vann sigur eftir óhemju spennandi keppni í samhliða stórsvigi. Hann varði þar með Ólympíumeistaratitil sinn frá því fyrir fjórum árum. Þessu fagnaði Karl með því að rífa sig úr fjórum lögum af klæðnaði og öskra siguröskur ber að ofan, sem vakið hefur talsverða athygli. Austurríkismaðurinn var að sjálfsögðu spurður út í fagnaðarlætin í viðtali eftir keppni og þá kom í ljós að hann hafði langað til að fagna svona í heilan aldarfjórðung. Hann vildi nefnilega herma eftir samlanda sínum og alpagreinagoðsögninni Hermanni Maier sem var átrúnaðargoð hans. „Ég hef alltaf viljað gera eins og hann gerði,“ sagði Karl sem gleymdi því hins vegar í Peking fyrir fjórum árum, þegar tilfinningarnar báru hann ofurliði eftir fyrsta Ólympíugullið. „En núna tók ég sénsinn. Ég var búinn að bíða í 25 ár eftir því að geta pósað eins og Hermann Maier. Núna er ég búinn að ná því og þetta er hápunktur ferils míns,“ sagði Karl hæstánægður. Bætti met Björndalen um 103 daga Eins og fyrr segir hefur hann nú bætt aldursmet norska skíðaskotfimikappans Ole Einar Björndalen sem vann Ólympíugull þegar hann var 40 ára og 12 daga. Karl var nefnilega 40 ára og 115 daga gamall í gær. Sá elsti sem unnið hefur Ólympíugull þegar ekki er aðeins horft til einstaklingsgreina er Skotinn Robin Welsh sem fékk gull í krullu þegar hann var orðinn 54 ára og 102 daga gamall.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Snjóbrettaíþróttir Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Sprungið dekk í Þakgili eyðilagði úrslitaleik HM Dagný orðin sendiherra West Ham Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Sjá meira