Gjóðarnir unnu Super Bowl sannfærandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2026 03:22 Varnarmenn Seattle Seahawks voru frábærir í kvöld og fagna hér snertimarki í leiknum Getty/Kathryn Riley/ Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár. Seahawks burstaði leikinn 29-13 en hann var lítil skemmtun fyrir þá sem vilja sjá góðan sóknarleik eða mikla spennu. Fá stig voru skoruð fram eftir leik og lítið um eitthvað sem kveikti almennilega í leiknum fyrr en aðeins í lokin. Seahawks-vörnin með stórleik Seahawks-vörnin átti aftur á móti stórleik. Hún felldi leikstjórnanda Patriots sjö sinnum og náði boltanum þrisvar sinnum af honum að auki. Vörnin skoraði einnig síðasta snertimark Sjóhaukanna í leiknum. Sparkarinn Jason Myers skoraði tólf fyrstu stig leiksins með fjórum vallarmörkum en þá héldu sumir að sparkari gæti mögulega verið kosinn verðmætastur. Á endanum fóru þau verðlaun til hlauparans Kenneth Walker sem hélt uppi sóknarleik Sjóhaukanna fram eftir leik. Walker er fyrsti hlauparinn til að vera útnefndur verðmætasti leikmaður Super Bowl síðan Terrell Davis árið 1998. Hann er áttundi hlauparinn í sögunni til að vinna titilinn verðmætasti leikmaðurinn í leiknum og 135 hlaupajardar hans eru einnig áttundi mesti fjöldi í sögu Ofurskálarinnar. Henry Birgir Gunnarsson talaði um varnarklám í útsendingu Sýn Sport frá leiknum og það er hægt að taka undir það. Sóknartilþrifin voru fá og ómerkileg en varnarliðin sýndu á móti þeim mun meira af góðum leiklestri og stoppum. Hræddur og hikandi Það var alls ekkert að frétta af sóknarleik New England Patriots í fyrri hálfleiknum, leikstjórnandinn Drake Maye var felldur þrisvar og liðið þurfti að sparka boltanum frá sér hvað eftir annað. Maye virtist hreinlega hræddur og hikandi á stærsta sviðinu og fyrir vikið smjattaði hin frábæra Seahawks-vörn á sóknarleik liðsins. Það voru reyndar engin snertimörk hinum megin en sókn Seahawks gekk mun betur og sparkarinn Jason Myers nýtti allar þrjár vallarmarkstilraunir sínar. Hann skoraði af 33, 39 og 41 jarda færi. Hlauparinn Kenneth Walker III var síðan burðarásinn í sóknarleik Seattle og var þegar kominn með 94 hlaupajarda á jörðu niðri í hálfleik. Patriots byrjaði með boltann í seinni hálfleiknum en þurfti strax að sparka honum frá sér. Lítið hafði breyst frá því í fyrri hálfleiknum. Seahawks-liðið byrjaði sóknina vel eins og oft áður en varð enn einu sinni að sætta sig við vallarmark. Myers skilaði því og jafnaði metið yfir flest vallarmörk í Super Bowl. Hann var kominn með fjögur slík og var því áfram eini maðurinn sem hafði skorað. Patriots náði einni endurnýjun og sýndi smá lífsmark en þó varð vont verra þegar Maye var felldur í fimmta sinn og hann missti boltann í leiðinni. Seahawks fór upp í sókn og skoraði fyrsta snertimark leiksins. Það skoraði innherjinn AJ Barner eftir laglega sendingu frá Sam Darnold og staðan var orðin 19-0. Smá lífsvon en hún dó strax Það var samt enn smá líf í New England Patriots sem svaraði með bestu sókn sinni í leiknum. Drake Maye fann útherjann Mack Hollins tvisvar í röð og í seinna skiptið skoraði Hollins laglegt snertimark. Patriots var búið að minnka muninn í 19-7 og það var nóg eftir af leiknum. Drake Maye kastaði þá boltanum og leiknum endanlega frá sér. Það var aðeins að lifna yfir Patriots-sókninni en ungi leikstjórnandinn tók áhættur sem komu í bakið á honum. Julian Love komst inn í sendinguna og þá var þetta nánast komið hjá Seahwaks. Maye átti þó eftir að gera kvöldið enn verra þegar hann glataði boltanum og varnarmenn Seahawks skoruðu strax í kjölfarið. Hlauparinn Rhamondre Stevenson lagaði reyndar stöðuna undir lokin eftir snertimarkssendingu frá Maye en þá var alltof lítið eftir af leiknum til að úr yrði einhver spenna.
NFL Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira