Elín og Jón Erik fánaberar Íslands Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 21:44 Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Jón Erik Sigurðsson verða fánaberar Íslands annað kvöld. ÍSÍ Setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina fer fram annað kvöld og nú er orðið ljóst hverjir fánaberar Íslands verða. Ísland á fjóra keppendur á leikunum og fer sá fyrsti af stað á sunnudaginn.
Alpagreinafólkið Jón Erik Sigurðsson og Elín Elmarsdóttir Van Pelt mun bera fána Íslands á setningarhátíðinni á morgun. Þau munu bæði keppa í svigi og stórsvigi á leikunum. Auk þeirra eru í íslenska Ólympíuliðinu skíðagöngufólkið Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir sem bæði hefja fyrr keppni en Jón Erik og Elín. Í fyrsta sinn í sögu Ólympíuleikanna verða kveiktir tveir Ólympíueldar samtímis, á setningarhátíðinni sem annars fer að mestu fram á San Siro í Mílanó. Annar verður í Mílanó við Arco della Pace og hinn í Cortína á Piazza Dibona. Draumur frá sex ára aldri „Það er ótrúlegur heiður að fá að bera íslenska fánann inn á setningarhátíð Ólympíuleikanna. Þetta er stærsta stund ferilsins hingað til og ég er gríðarlega stolt af því að standa hér fyrir hönd Íslands,“ segir Elín á vef ÍSÍ. Jón Erik segir að æskudraumur sinn sé að rætast. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að halda á fánanum. Mig hefur dreymt um að keppa á Vetrarólympíuleikunum síðan ég var sex ára og að fá líka tækifæri til að bera íslenska fánann er alveg ótrúlegt.“ Keppnisdagskrá Íslendinga Skíðaganga Dagur Benediktsson 8. febrúar – 20 km skiptiganga (10 km klassískt / 10 km frjálst) 10. febrúar – Sprettganga, klassískt 13. febrúar – 10 km frjálst 21. febrúar – 50 km klassískt Kristrún Guðnadóttir 10. febrúar – Sprettganga, klassískt 12. febrúar – 10 km frjálst Alpagreinar Jón Erik Sigurðsson 14. febrúar – Stórsvig 16. febrúar – Svig Elín Elmarsdóttir Van Pelt 15. febrúar – Stórsvig 18. febrúar – Svig
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Sprungið dekk í Þakgili eyðilagði úrslitaleik HM Dagný orðin sendiherra West Ham Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Sjá meira