„Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2026 10:03 Cristiano Ronaldo heldur upp á 41 árs afmælið sitt í dag en hann á í deilum við eigendur Al Nassr sem er fjárfestingarsjóður Sádi-Arabíu. Getty/Yasser Bakhsh Stuðningsmenn Al Nassr lýsa eftir Cristiano Ronaldo og einn frægasti fjölmiðlamaður Sádi-Arabíu gerði grín að honum. Ronaldo er í verkfalli vegna þess að hann er ósáttur með hvernig fjárfestingarsjóður Sádi-Arabíu stjórnar félaginu í sádi-arabísku úrvalsdeildinni.
Ronaldo heldur upp á 41 árs afmæli sitt í dag en það er ekki mjög líklegt að hann fái afmælisköku frá félaginu sínu eða liðfélögum vegna þeirra kringumstæðna sem eru komnar upp. Ronaldo er sagður muna halda fast við afstöðu sína og sniðganga annan deildarleik í röð eftir að hafa ekki fengið áþreifanlega tryggingu fyrir því að opinberi fjárfestingarsjóður Sádi-Arabíu muni gera breytingar á stjórnun félagsins í sádi-arabísku úrvalsdeildinni. Mættur á æfingu en ætlar ekki að spila Hann birti myndir af sér á samfélagsmiðlum snúa til baka á æfingu en það er samt búist við því að hann sé enn í verkfalli þegar kemur að leikjum. Heimildamenn hafa tjáð ESPN að ef engar breytingar verða tryggðar á næstu vikum muni Ronaldo biðja um að fá að yfirgefa félagið í júní. Portúgalski framherjinn neitaði að spila fyrir félag sitt í 1-0 deildarsigri á Al Riyadh á mánudag í mótmælaskyni og hélt því fram að PIF fjárfesti ekki nægilega í Al Nassr og veitti þess í stað keppinautnum Al Hilal forskot. View this post on Instagram A post shared by FootyRoom (@footyroom) „Ronaldo ætti að þekkja sinn stað. Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía. Hann er starfsmaður hér. Hann er með gríðarlega há laun, hærri en hann fékk nokkurn tímann í Evrópu. Hann ætti að bera virðingu fyrir deildinni eða fara,“ sagði sádi-arabíski blaðamaðurinn Waleed Al Farraj. Lýsa eftir honum út um allt Stuðningsmenn AL-Nassar eru líka mjög ósáttir með fjarveru stórstjörnu sinnar og sumir gengu svo langt að setja upp auglýsingar þar sem lýst var eftir Ronaldo eins og gert er með fólk sem er saknað eða glæpamenn á flótta. Ronaldo á að hafa reynt að koma í veg fyrir félagaskipti frönsku stjörnunnar Karim Benzema frá Al Ittihad til Al Hilal á mánudag þar sem honum fannst skiptin ósanngjörn og gáfu til kynna að PIF vildi ryðja brautina fyrir Al Hilal til að vinna titilinn. Sagður mjög reiður Ronaldo hefur enn ekki unnið stóran titil síðan hann gekk til liðs við Al Nassr árið 2022 og er sagður mjög reiður. Þrátt fyrir að hann hafi fengið tilboð um að yfirgefa félagið núna, aðallega frá Evrópu og Bandaríkjunum, vill hann ekki gera það þar sem það gæti truflað undirbúning hans fyrir heimsmeistaramótið. Fyrrverandi stjarna Real Madrid skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við Al Nassr síðasta sumar til júní 2027 og hefur 50 milljóna evra (59 milljóna dala) riftunarákvæði. Sádi-arabíska úrvalsdeildin vill ekki missa stærsta sendiherra sinn. Að sögn heimildarmanna hafa Al Nasr og PIF lofað Ronaldo stórum fjárfestingum í sumar, þar sem portúgalski liðsfélagi hans Bruno Fernandes hjá Manchester United er talinn mögulegur liðsstyrkur, ásamt öðrum stórum nöfnum. View this post on Instagram A post shared by Squawka Football (@squawkafootball)
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira