Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 13:01 Feðginin Aura V og Fyütch hlutu Grammy-verðlaunin 2026 fyrir bestu barnaplötuna. Getty/Myung J. Chun Feðginin Aura V og Harold Simmons II, betur þekktur undir listamannsnafninu Fyütch, unnu Grammy-verðlaun á dögunum fyrir bestu barnaplötu ársins fyrir plötuna Harmony. Aura V, sem er átta ára gömul, varð þannig yngsti handhafi Grammy-verðlauna í sögunni og sló þannig met Blue Ivy Carter. Aura V nýtti tækifærið í þakkarræðu sinni til að hrósa íslensku tónlistarkonunni Laufeyju og óskaði henni til hamingju með sín verðlaun.
Feðginin veittu Grammy-verðlaununum viðtöku á verðlaunaathöfn í Peacock-leikhúsinu í Los Angeles sem fór fram beint á undan aðalverðlaunahátíðinni sem var sjónvarpað síðar um kvöldið. Laufey tók einnig við sínum öðrum Grammy-verðlaunum við sömu athöfn og það hafði ekki farið framhjá Aura V. Laufey og Aura V mættu í sama lit á Grammy-verðlaunahátíðina og nældu sér báðar í verðlaun.Getty „Það er heiður að vera hér í dag, ég átti ekki von á að við myndum ná svona langt. Shout-out til Laufeyjar, ég hitti hana á rauða dreglinum og ég náði að tala aðeins við hana, en ég veit að hún vann líka Grammy svo ég vil óska henni til hamingju,“ sagði Aura V í sinni þakkarræðu. Hún naut aðstoðar pabba síns sem lyfti dóttur sinni svo hún næði upp í míkrafóninn til að halda sína ræðu eftir að Fyütch hafði lokið sínu máli. Ræður þeirra beggja má sjá í spilaranum hér að neðan. Samkvæmt umfjöllun E-online skrifaði Aura V sig á spjöld sögunnar þegar hún veitti verðlaununum viðtöku, en hún er nú yngsti einstaklingurinn sem hlotið hefur Grammy-verðlaun í sögunni. Fyrra met átti engin önnur en Blue Ivy Carter, dóttir tónlistargoðsagnanna Beyoncé og Jay-Z, sem vann til Grammy-verðlauna þegar hún var níu ára fyrir aðkomu sína að laginu Brown Skin Girl, sem fékk verðlaun fyrir besta tónlistarmyndbandið árið 2021. Hér að neðan má einnig finna tónlistarmyndband Fyütch og Aura V við lagið Harmony, titillagið á verðlaunaplötu feðginanna.
Grammy-verðlaunin Tónlist Laufey Lín Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira