„Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Stefán Árni Pálsson skrifar 4. febrúar 2026 10:40 Hafsteinn og Ólíver séu LHÍ verkið sitt fara á svið í Þjóðleikhúsinu. Í Þjóðleikhúsinu var frumsýnt glænýtt íslenskt verk fyrir skemmstu. Í raun er um að ræða óperu-rappsöngleik með þrjátíu lögum sem eru jafn fjölbreytt og þau eru grípandi. Í gærkvöldi fékk Tómas Arnar að skyggnast á bak við leikhústjöldin og fékk að heyra allt um hvernig þessi söngleikur, sem að hófst sem ástríðuverkefni á sviðshöfundabraut, varð að flaggskipi Þjóðleikhússins þennan leikveturinn.
Um er að ræða sýninguna á Ormstungu sem hefur fengið frábærar móttökur síðan hún var frumsýnd enda hreyfir þessi nýjasta útgáfa Íslendingasagnanna frá 14. öld við ungum sem öldnum. Í þessari uppsetningu takast þeir Gunnlaugur Ormstunga og Hrafn Önundarson ekki aðeins á í kveðskap heldur er rappað og sungið fyrir allan peninginn. Í Íslandi í dag var rætt við höfundana tvo. Gísli Örn Garðarsson er leikstjóri verksins. Vísir/Stöð 2 „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki. Við erum í spennufalli. Að vísu gerðum við þetta auðvitað sem skólasýningu í LHÍ og þá var svona fyrsta frumraunin kannski að sjá þetta á svið en þá var þetta umgjörðarlaust. Þá voru allir bara í svörtu, tveir kórpallar og engir búningar. Og að sjá þetta svo með þessari umgjörð, þessari frábæru leikmynd, bandinu og búningunum, það er svona auka spennufall ofan á upprunalega spennufallið,“ segir Hafsteinn Níelsson, höfundur Ormsstungu en her að neðan ma sja innslagið í heild sinni. Gísli Örn vildi sjá þeirra sýn „Fyrst um sinn ætluðum við að byrja að skrifa en svo fengum við okkur kannski einum of marga og vorum ekkert að þessu svona svo almennilega fyrr en við vorum að kryfja svona persónurnar og söguna upp úr bókinni,“ segir Ólíver Þorsteinsson höfundur verksins. Um var að ræða algjöra draumaframvindu fyrir unga og upprennandi listamenn. Að þeirra mati voru það algjör forréttindi að fá að fylgjast með verkinu stækka og taka breytingum í meðferð Gísla Arnars leikstjóra. „Í rauninni þurftum við aldrei þannig lagað séð að sleppa takinu, út af því að Gísli var mjög svona ákveðinn í því að við ættum bara að vera með í öllu ferlinu og við fengum svona að fylgja þessu eftir,“ segir Ólíver. „Við byrjum bara og mætum á fyrsta samlestur og mætum á æfingar uppi í Málarasal og fylgjumst með æfingunum hérna á sviðinu. Og Gísli var líka ekki feiminn við að bara segja við okkur að ef við værum með einhverja punkta, þá bara að koma með þá, af því að hann sagði við okkur að hann vildi bara lyfta upp okkar sýn og okkar verki,“ segir Hafsteinn.
Menning Þjóðleikhúsið Ísland í dag Leikhús Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira