Veður

All­hvass vindur og svalari en síðustu daga

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður kringum frostmark að deginum.
Hiti verður kringum frostmark að deginum. Vísir/Vilhelm

Lægðasvæði suður í hafi og hæð fyrir norðan land beina enn austlægri átt til landsins. Víða verður gola eða kaldi í dag en allhvass vindur syðst á landinu.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að austanáttin sé heldur svalari en síðustu daga og því megi búast við éljum austanlands, en á vestanverðu landinu verði yfirleitt þurrt og bjart veður.

Hiti kringum frostmark að deginum.

„Svipað veður fram eftir degi á morgun, en síðdegis ganga skil inn yfir suðaustur- og austurhluta landsins með snjókomu, slyddu eða rigningu. Á þessum slóðum má búast við talsverðri úrkomu um tíma og líkur á að færð spillist á fjallvegum um stundar sakir.

Annað kvöld og aðra nótt ganga skilin vestur yfir landið með einhverri úrkomu í flestum landshlutum, en á föstudag er svo útlit fyrir meinlausa austlæga átt með dálitlum skúrum eða éljum á víð og dreif,“ segir í tilkynningunni.

Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðaustan 13-18 m/s við suðausturströndina, annars hægari vindur. Víða él, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti um eða undir frostmarki. Snjókoma, slydda eða rigning á Suðaustur- og Austurlandi síðdegis, og einnig vestantil seint um kvöldið. Hlýnar heldur.

Á föstudag: Austan 5-13 m/s og dálitlar skúrir eða él, en birtir til á vesturhelmingi landsins. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost um landið norðaustanvert. Kólnar síðdegis.

Á laugardag og sunnudag: Norðaustan og austan 5-13 og él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti um eða undir frostmarki.

Á mánudag: Austan- og norðaustanátt og rigning, slydda eða snjókoma með köflum. Hlýnar í veðri.

Á þriðjudag: Austlæg átt. Rigning eða slydda með köflum austanlands, annars úrkomulítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×