Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2026 08:31 Eygló Fanndal Sturludóttir með verðlaun sín sem Íþróttamaður ársins 2025 og svo Sara Sigmundsdóttir. Vísir/Hulda Margrét/@sarasigmunds Eygló Fanndal Sturludóttir er núverandi íþróttamaður ársins og hún átti skemmtileg samskipti við íslensku CrossFit-goðsögnina Söru Sigmundsdóttur á samfélagsmiðlum á dögunum.
Sara skrifaði pistil á miðla sína þar sem hún rifjaði upp hvernig hún heillaðist af ólympískum lyftingum og nefndi að þótt hún hafi verið fyrsta íslenska konan til að lyfta tvö hundruð kílóum þá væri Evrópumeistarinn okkar kominn langt yfir það. Sara skrifaði pistil sinn á ensku. Breytti hugarfari mínu algjörlega „Þegar ég kynntist CrossFit varð ég ástfangin af ólympískum lyftingum. Það breytti hugarfari mínu algjörlega, úr því að skammast mín fyrir að vera sterk stelpa yfir í að faðma styrkinn að fullu,“ skrifaði Sara. „Ég setti mér stórt markmið: að verða fyrsta íslenska konan til að lyfta yfir tvö hundruð kíló samanlagt og það tókst. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að þetta var fyrir níu árum, mér finnst eins og það hafi gerst í gær. Síðan þá hafa ólympískar lyftingar á Íslandi tekið gríðarlegum framförum,“ skrifaði Sara. „Í dag er núverandi Evrópumeistari í kvennaflokki íslensk, Eygló Fanndal Sturludóttir. Og já, samanlögð lyfta hennar er langt yfir tvö hundruð kílóum,“ skrifaði Sara. Ótrúlega stolt af því hvernig íþróttin hefur þróast „Ég er ótrúlega stolt af því hvernig íþróttin hefur þróast á Íslandi, sérstaklega meðal kvenna, og enn stoltari af því að sjá hversu margar stelpur faðma nú styrk sinn og eru stoltar af honum,“ skrifaði Sara. Eygló Fanndal sjálf sá færsluna og setti inn skemmtilega athugasemd. „Stærsta fyrirmyndin mín þegar ég var að byrja í íþróttinni og lock screenið [lásskjámynd] mitt í vandræðalega langan tíma,“ skrifaði Eygló. Sara svaraði henni líka á móti. „Eygló Fanndal, þú ert lockscreenið mitt núna,“ skrifaði Sara. Já, fyrirmyndin þín er nú með þig sem fyrirmynd. Eitthvað til að fá fólk til að hlýna um hjartaræturnar. View this post on Instagram A post shared by Sara Sigmundsdóttir (@sarasigmunds)
Íþróttamaður ársins Lyftingar CrossFit Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Keflavík - FH | Erfið heimsókn til Keflavíkur. Ísak Bergmann trúlofaður Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Sjá meira