Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Tal 2. febrúar 2026 13:00 „Í Máli málanna förum við beint í aðalatriðin til að miðla því sem skiptir fólk máli á hnitmiðaðan hátt,“ segir Auðun Georg Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsins Mál málanna. Fréttirnar dynja á okkur úr öllum áttum en í amstri dagsins er oft erfitt að greina samhengi þeirra og fá yfirsýn yfir það sem skiptir mestu máli. Hlaðvarpið Mál málanna tekur saman heitustu málin og setur þau fram á mannamáli.
Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum? Í hádeginu á hverjum virkum degi fer Auðun Georg Ólafsson yfir það sem skiptir landsmenn mestu máli. Nálgast má þáttinn frítt á öllum hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið. Hér má hlusta á nýjasta þáttinn sem fór í loftið í dag. Fyrir önnum kafið fólk „Í Máli málanna förum við beint í aðalatriðin til að miðla því sem skiptir fólk máli á hnitmiðaðan hátt,“ segir Auðun. „Hlaðvarpið er hugsað fyrir önnum kafið fólk á öllum aldri sem hefur kannski ekki tíma til að setja sig inn bakgrunn mikilvægustu mála en flestir þættirnir eru á bilinu 8-12 mínútur að lengd. Pælingin er að Mál málanna gefi hlustendum innsýn í það sem er að gerast svo þeir fái samhengi atburða líðandi stundar með aðgengilegum hætti. Helstu mál vikunnar eru síðan krufin í hádeginu á föstudögum. Þetta er vinsælt hlaðvarpsform sem hefur víða rutt sér til rúms, eins og til dæmis í fréttaþáttunum What a day, Up first og Today explained,“ segir Auðun. Lokar hringnum Auðun Georg er enginn nýgræðingur í bransanum en hann bættist nýlega í hóp liðsmanna Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Auðun Georg Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsins Mál málanna. „Ég er eiginlega kominn heim á fornar slóðir því fjölmiðlaferillinn hófst 1991 sem fréttamaður á útvarpsstöðinni FM sem þá var staðsett í Kópavogi. Ári síðar dró Steingrímur Ólafsson, þáverandi yfirmaður minn, mig yfir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en hann sá þá um þáttinn ásamt Hallgrími Thorsteinsson. Ég á margar góðar minningar frá þessum tíma og ánægjulegt að þátturinn hafi staðist tímans tönn. Markmiðið hefur alltaf verið að bjóða upp á fjölbreytt efnistök og upplýsa hlustendur um málefni líðandi stundar á mannlegum nótum. Nú hitti ég fyrir reynsluboltana Kristófer Helgason og Pál Sævar Guðjónsson sem eru miklir fagmenn og sannur heiður fyrir mig að starfa með í vinsælasta útvarpsþætti landsins.“ Ef þú vilt vita hvað raunverulega skiptir máli, hlustaðu þá á Mál málanna sem kemur út alla virka daga á helstu hlaðvarpsveitum og auðvitað á Tal.is sem er heimili íslenskra hlaðvarpa. Tal - heimili íslenskra hlaðvarpa og Vísir eru í eigu Sýnar.
Hlaðvörp Fjölmiðlar Mál málanna Mest lesið Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Tónlist Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár Áskorun Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Lífið Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Lífið „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Matur Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Lífið Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira