Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Aron Guðmundsson skrifar 28. janúar 2026 08:03 Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu Vísir/Getty Dagur Sigurðsson er allt annað en sáttur með þétta leikjadagskrá á EM í handbolta og í viðtali eftir mikilvægan sigur á Slóvenum í milliriðlum í gær lét hann forsvarsmenn Evrópska handknattleikssambandsins heyra það.
Króatar verma toppsæti milliriðils tvö með sex stig, stigi meira en Ísland og Svíþjóð og vita það fyrir víst að sigur í dag gegn Ungverjalandi tryggir þeim sæti í undanúrslitum mótsins. Það sama gildir um Ísland en íslenskur sigur gegn Slóvenum tryggir Strákunum okkar sæti í undanúrslitum. Það er spilað þétt á EM þessa dagana. Króatar þurftu að leggja mikið á sig til þess að ná fram sigri gegn Slóvenum í gær og þurfa að mæta klárir strax aftur í dag í slag gegn Ungverjum upp á líf og dauða í mótinu. Öll hin lið riðilsins eru í sömu stöðu og Króatar hvað varðar þétta leikjadagskrá en Degi finnst fullmikið af því góða að láta þáttökuþjóðir á mótinu spila tvo daga í röð og hann lét óánægju sína í ljós eftir leik í gær. „Það líða tuttugu og tvær klukkustundir á milli leikja hjá okkur. Ég þakka bara EHF fyrir,“ sagði Dagur með kaldhæðnislegum tón. „Þetta er ótrúlegt, það að við þurfum að spila tvo daga í röð, gjörsamlega ótrúlegt.“ View this post on Instagram A post shared by Handball-Planet.com (@handball_planet_official) Dagur er ekki fyrsti Íslendingurinn sem lætur í sér heyra sökum keppnisfyrirkomulagsins á EM. Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins viðraði einnig óánægju sína með það í viðtali við TV 2 í Danmörku á dögunum. Ísland mætir Slóveníu í dag klukkan hálf þrjú í lokaumferð milliriðla EM. Sigur í þeim leik gulltryggir Íslandi sæti í undanúrslitum mótsins. Þetta varð ljóst efir jafntefli Svía gegn Ungverjalandi í gær. Svo gæti líka farið að jafntefli nægi en í því tilfelli mættu Svíar ekki vinna Sviss í kvöld. Stóri punkturinn í þessu öllu saman er að örlögin eru í höndum Strákanna okkar fyrir leik dagsins. Sigur þar og við erum á leið í undanúrslit.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira