Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Bjarki Sigurðsson skrifar 26. janúar 2026 21:03 Sigrún Júlíusdóttir er doktor í fjölskyldutengslum og prófessor emerita í félagsráðgjöf. Vísir/Lýður Valberg Doktor í fjölskyldutengslum segir fólk í auknum mæli útskúfa fjölskyldumeðlimum vegna deilna. Oftast sé um að ræða uppkomin börn sem útiloki foreldra sína frá barnabörnum. Erfitt er að leysa úr deilunum.
Internetið hefur logað síðustu daga eftir að Brooklyn Beckham, sonur Davids og Victoríu Beckham, sakaði foreldra sína um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Hann hefði engan áhuga á að sættast við fjölskyldu sína. Meðal þess sem Brooklyn nefndi var að móðir hans hafi eyðilagt fyrsta dans hans og eiginkonu hans, Nicola Peltz, í brúðkaupi þeirra. Listamaður sem kom þar fram hafi kallað Brooklyn upp á svið til að dansa fyrsta dansinn og svo beðið „fallegustu konuna í herberginu“ til að mæta. Því næst steig Victoría sjálf upp en ekki eiginkonan. Fjölskyldan hafi að lokum lokað á hann og er Brooklyn ekki í neinum samskiptum við foreldra sína. Oft þekktir einstaklingar Sigrún Júlíusdóttir, prófessor emerita í félagsráðgjöf, segir dæmi á Íslandi þar sem fólk lokar á aðra fjölskyldumeðlimi. „Þetta er fyrst og fremst í vestrænni menningu. Þetta er hjá fólki sem er með tiltölulega góða menntun, í efri millistétt oft og gjarnan þekktir einstaklingar,“ segir Sigrún. Amma og afi fái ekki að hitta barnabörnin Gremjan stafi oft af því að uppkomin börn telji foreldra sína ekki hafa sinnt sér í æsku. „Samsetningin er fullorðin börn, miðaldra foreldrar og stundum afar og ömmur. Mjög oft bitnar þetta á tengslum ömmu og afa og barnanna. Það er að segja, það er ekki bara lokað á tengslin við foreldrana, heldur líka á aðgengi ömmu og afa að barna- og barnabarnabörnum,“ segir Sigrún. Hugsa um börnin Mál sem þessi séu afar viðkvæm og erfitt að leysa þau. „Ef fólk er sæmilega hugsandi og tilbúið að fara aðeins undir yfirborðið, þá sér það bæði sinn eigin hag og hag lítilla barna sem geta þarna komið við sögu,“ segir Sigrún.
Fjölskyldumál Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira