Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 23:15 Cameron Smotherman stígur hér af vigtinni en aðeins örskömmu síðar steinlá hann í gólfinu. Getty/Jeff Bottari/ UFC-bardagakappinn Cameron Smotherman missti meðvitund nokkrum sekúndum eftir að hafa náð vigt á föstudag í Las Vegas, sem varð til þess að forsvarsmenn aflýstu fyrirhuguðum bardaga hans gegn Ricky Turcios.
Smotherman hneig niður upp á sviðinu þegar hann var að ganga í burtu frá vigtinni. Þessi 28 ára gamli kappi missti meðvitund og féll fram fyrir sig á sviðsgólfið. Smotherman hafði rétt náð 135,5 pundum og þar með staðist vigt fyrir bardaga sinn gegn Ricky Turcios. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible KO (@sportbibleko) Þegar hann gekk í átt að útganginum virtist hann augljóslega óstöðugur áður en hann missti meðvitund og hneig fram fyrir sig. Sjúkraliðar og starfsfólk UFC þustu til að aðstoða hann innan nokkurra sekúndna frá atvikinu. Kappinn komst aftur til meðvitundar skömmu eftir fallið og var fylgt burt til frekari skoðunar hjá læknum. Hann var fluttur á sjúkrahús á staðnum til frekari læknisaðstoðar. Tölvusneiðmyndir og röntgenmyndir sýndu ekkert óeðlilegt og hann þurfti aðeins að láta sauma skurð á höku sinni eftir fallið. Smotherman tjáði sig sjálfur um atvikið á samfélagsmiðlum á föstudagskvöld og fullvissaði aðdáendur um að hann væri alheill á húfi. Hann sagðist ekki hafa þurft að skera mikið niður og væri enn óviss um hvað olli því að hann hneig niður. Kappinn sagðist myndu gangast undir frekari rannsóknir hjá læknum til að komast að því hvað gerðist eftir að hann fór af vigtinni. Forsvarsmenn UFC aflýstu þriggja lotu bantamvigtarbardaganum milli Smotherman og Turcios í kjölfar atviksins. Bardaginn hafði verið á dagskrá í forkeppni laugardagskvöldsins. Smotherman bað andstæðing sinn afsökunar á afbókuninni og lýsti yfir vilja til að snúa aftur til keppni í náinni framtíð. Kappinn frá Houston kom inn í vikuna með keppnisferil upp á tólf sigra og sex töp og átti að keppa í fjórða sinn undir merkjum UFC. View this post on Instagram A post shared by Uncrowned (@uncrowned)
MMA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Fleiri fréttir Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Sjá meira