„Hættum að spila okkar leik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. janúar 2026 22:03 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. Vísir/Hulda Margrét Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var eðlilega svekktur eftir þriggja stiga tap liðsins gegn KR í framlengdum leik í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Þórsarar voru mest 19 stigum yfir í 4. leikhluta, en köstuðu forystunni frá sér og þurftu að lokum að sætta sig við tap. Lokatölur 123-126 eftir framlengdan leik. „Ef maður ætlar að læra eitthvað af þessu þá er það að maður á aldrei að hætta að spila,“ sagði Lárus í leikslok. „Mér fannst við bara hætta að spila okkar leik. Við erum að labba upp með boltann og spila löturhægt. Þá verður sóknin hjá okkur smá frosin. Svo setja þeir tvo þrista og minnka þetta niður og allt í einu er þetta ekki lengur óyfirstíganlegt fyrir þá. Mér fannst við bara vera dottnir alveg út úr takti og þetta er auðvitað alveg gríðarlega svekkjandi tap. Stórt tap fyrir okkur.“ Hann segir að hans menn hafi mögulega haldið að sigurinn væri í höfn. „Já ír rauninni. Við ætluðum bara að verja forskotið, það er ekkert flóknara en það.“ Hann segir þó ekki hafa vantað upp á að hans menn hafi verið að leggja sig fram þegar illa gekk. „Leikmenn voru alveg að leggja sig fram. En við bara hættum að spila okkar leik. Það er kannski bara frekar það. Við byrjum að spila mjög hægt sóknarlega og þeir ganga á lagið. Við vorum kannski að fara aðeins of mikið í einstaklingsframtak og þeir stela af okkur einhverjum boltum og skora auðveld hraðaupphlaupsstig. Mér fannst leikurinn snúast við eftir fyrri hálfleik þar sem við vorum að skora mikið úr hraðaupphlaupum, en í seinni hálfleik voru þeir að skora mikið úr hraðaupphlaupum.“ Eins og Lárus segir þá var þetta stórt tap fyrir Þór í kvöld. Sigur hefði komið liðinu tveimur stigum frá úrslitakeppnissæti, en tapið þýðir að liðið er nú aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. „Þetta var kannski leikurinn til að við gætum allavega nálgast KR. Við hefðum verið bara tveimur stigum á eftir þeim, en núna erum við sex stigum á eftir þeim og þeir eiga innbyrðis á okkur þannig það verður allavega mjög erfitt að ná þeim.“ Þór mætir Val í næstu umferð og Lárus segir að hans menn þurfi að mæta með betra hugarfar í þann leik en þeir voru með undir lok leiks í kvöld. „Það er náttúrulega bara annar leikur og önnur barátta. Þessi leikur er búinn og við þurfum ekkert einhvern viðsnúning. Kannski þurfum við bara að halda áfram að spila ef við verðum komnir 20 stigum yfir,“ sagði Lárus að lokum.
Bónus-deild karla KR Þór Þorlákshöfn Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira