Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Aron Guðmundsson skrifar 16. janúar 2026 07:32 Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburgar, ræðir hér við leikmann sinn Gísla Þorgeir Kristjánsson. Saman hafa þeir verið sigursælir en Wiegert dáist að því hversu margir heimsklassa leikmenn koma frá Íslandi. Vísir/Getty Bennet Wiegert, þjálfari þýska stórliðsins Magdeburgar, telur að fjölmennari þjóðir geti lært mikið af starfinu sem unnið er hér á Íslandi í kringum handbolta. Hann dáist að því hversu margir heimsklassa leikmenn koma frá Íslandi og væri til í að koma hingað til lands í starfsþjálfun.
Wiegert hefur verið þjálfari stórliðs Magdeburgar frá árinu 2015 og undir hans stjórn núna spila þrír Íslendingar. Þeir Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson. Þjóðverjinn mun því fylgjast vel með gengi íslenska landsliðsins á EM. Undir stjórn Wiegert hefur Magdeburg hefur unnið allt sem hægt er að vinna, bæði heima fyrir sem og í Meistaradeild Evrópu. Þessi sigursæli þjálfari dáist að því starfi sem er unnið hér heima í handboltanum og því hvernig hér tekst stöðugt að framleiða handboltamenn í heimsklassa. Ómar Ingi Magnússon er í lykilhlutverki hjá Magdeburg sem og íslenska landsliðinuGetty/Igor Kralj „Ég tel að það sem þessi litla þjóð er að afreka sé vanmetið og er þá ekki að tala um litla þjóð á neikvæðan hátt,“ segir Wiegert í hlaðvarpsþættinum Ballsam en til samanburðar og með tilliti til íbúafjöldans á Íslandi yrði Ísland sextánda fjölmennasta borgin í Þýskalandi. „Að mínu mati eru Færeyjar og Íslands frábært dæmi um það hverju er hægt að ná fram með góðu yngri flokka starfi og félagsstjórnun. Það er magnað hvernig smáríki eins og Ísland getur stöðugt framleitt handboltamenn í hæsta gæðaflokki sem láta að sér kveða í evrópska boltanum.“ Wiegert telur að hægt sé að draga mikinn lærdóm af því starfi sem unnið er hér heima í handboltanum og vær til í að sækja land og þjóð heim í þeim tilgangi. „Það hvernig þeir fara að þessu er ótrúlegt að mínu mati. Ég myndi elska það að fara til Íslands og fylgjast með því hvernig félögin þar haga sínu starfi, hvernig þau framleiða svona marka handboltamenn á þessari litlu eyju og gera þá tilbúna fyrir deildir á borð við þýsku úrvalsdeildina. Wiegert telur íslenska landsliðið eiga fína möguleika á komandi Evrópumóti en liðið mætir Ítalíu í dag í fyrsta leik sínum í F-riðli en að auki eru landslið Póllands og Ungverjalands í riðlinum. „Við verðum að bíða og sjá hvort liðinu takist að komast í undanúrslit og berjast um verðlaun. Það sem liðinu skortir kannski er breidd.“ Leikur Íslands og Ítalíu í F-riðli Evrópumótsins í handbolta hefst klukkan fimm í dag og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi. Okkar menn úti í Kristianstad sjá svo um að færa okkur brakandi fersk viðtöl að leik loknum og í kvöld verður hægt að nálgast uppgjör á leiknum með sérfræðingum íþróttadeildar Sýnar í hlaðvarpinu Besta sætið.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta HSÍ Handbolti Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira