Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2026 07:12 Frost verður á bilinu eitt til níu stig í dag. Vísir/Vilhelm Lægð austnorðaustur af landinu beinir stífri norðvestlægri átt ásamt ofankomu til landsins í dag, en úrkomulítið verður sunnanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að gular viðvaranir vegna vinds og hríðar séu í gildi í fyrstu á norðaustanverðu landinu, en áfram dragi úr vindi og ofankomu. Í kvöld verður svo komið skaplegt veður víðast hvar. Frost verður á bilinu eitt til níu stig þar sem kaldast verður inn til landsins. „Á morgun, miðvikudag er útlit fyrir norðaustan kalda, en hægari norðan og austantil. Dálítill éljagangur fyrir norðan og einnig allra syðst og austast um kvöldið en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Lítilsháttar snjókoma norðantil, en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. Frost 1 til 10 stig, mildast við ströndina. Á fimmtudag og föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 og dálítil él, en þurrt um landið sunnanvert. Áfram kalt í veðri. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 og úrkomulítið. Vaxandi suðaustanátt síðdegis og hlýnar sunnan- og vestanlands með slyddu eða rigningu seint um kvöldið. Á sunnudag: Suðaustanátt með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hægari suðlæg átt síðdegis og stöku skúrir eða él, en rigning á Suðausturlandi. Kólnar heldur. Á mánudag: Útlit fyrir suðlæga átt með dálítilli úrkomu í flestum landshlutum. Víða frostlaust við ströndina, annars vægt frost.
Veður Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent