„Maður fann andrúmsloftið breytast“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 10:18 Vignir Vatnar naut sín vel í Katar. Vísir/Sigurjón Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson naut sín vel innan um stórstjörnur á HM í hraðskák í Katar um áramótin. Hann hafði gaman af stælum Norðsmannsins Magnusar Carlsen.
Vignir er 22 ára og er bæði yngsti og nýjasti stórmeistari landsins, en hann hlaut þann titil árið 2023. Hann hefur farið mikinn síðustu misseri og og fór á HM í hraðskák í Katar undir lok nýliðins árs. Það fór aðeins bratt af stað en hann kom nokkuð sáttur heim með tíu vinninga af 19 í farteskinu. „Ég var ekki alveg mættur, eigum við ekki orða það svoleiðis? Mér gekk ekki vel í atskákinni, sem er ekki mín sérgrein. Það eru 15 mínútna skákir. Þá er ég annað hvort alltof hraður eða alltof hægur. Það er erfitt að finna jafnvægi í því en í hraðskákinni stend ég góðum fæti“ segir Vignir Vatnar í Sportpakkanum á Sýn. Frammistaðan fór því batnandi eftir því sem á leið. „Þá var maður líka orðinn vanur þessu, að tefla með þessum stjörnum þarna. Það var spes augnablik þegar Magnus Carlsen var með níu vinninga og ég með átta. Þá var ég einni skák frá því að mæta honum og hugsaði hvað er í gangi hérna?“ segir Vignir og bætir við: „Það er svo skrýtið að sjá Carlsen tefla þarna og hvernig hann lætur. Hann ýtti myndatökumanni þarna og þetta var spes allt. En þetta er klárlega að fara að gera aftur og sérstaklega á þetta mót á næsta ári.“ Umræddur Carlsen vakti athygli í heimspressunni vegna framkomu sinnar á mótinu. „Það er örugglega hægt að búa til svona þriggja mínútna myndband bara af honum á þessu móti. Eins og þegar hann tefldi við Hans Nyman, það var alveg stórkostlegt atvik og þeir með sína sögu sín á milli. Carlsen sakaði hann um svindl og svona. Maður fann andrúmsloftið breytast,“ segir Vignir. Vignir segir þetta þá stærsta mótið sem hann hafi tekið þátt í. Hann stefnir áfram hærra og ætlar tvímælalaust aftur á mótið að ári. „Ég hef tekið þátt í Evrópumótunum og allt þetta en sennilega er þetta það stærsta með allar stórstjörnurnar. Planið er að taka þetta á næsta ári líka og standa sig ennþá betur, sérstaklega í hraðskákinni. Sýna að maður sé helvíti öflugur í þeim geira,“ segir Vignir. Fréttina má sjá í spilaranum að ofan.
Skák Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Enskt hlaðborð á laugardegi Sport Fleiri fréttir Enskt hlaðborð á laugardegi Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sjá meira