Tækifæri fyrir Fanneyju eftir að Häcken lánaði markvörðinn til Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 10:30 Fanney Inga Birkisdóttir ætti að fá tækifæri til að sýna sig og sanna í upphafi tímabilsins. Getty/Pat Elmont Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir ætti að fá fleiri tækifæri hjá Häcken á komandi tímabili eftir að sænska félagið lánaði aðalmarkvörð sinn til Liverpool.
Jennifer Falk spilaði 23 af 26 leikjum Häcken á síðustu leiktíð en nú fer hún á láni til Bítlaborgarinnar fram á sumar. „Það hefur verið draumur að spila í þessari deild,“ sagði Jennifer Falk á heimasíðu Häcken. Auk þess að verja mark Häcken þá er hún markvörður sænska landsliðsins. Jennifer Falk förlänger – och lånas ut 🐝BK Häcken förlänger avtalet med Jennifer Falk över år 2028. Samtidigt står det klart att landslagsmålvakten lånas ut till Liverpool FC fram tills sommaren.https://t.co/etgCdOCCkB#bkhäcken— BK Häcken (@bkhackenofcl) January 7, 2026 Häcken tilkynnir þar að hin 32 ára gamla Jennifer Falk framlengi um leið samning sinn við sænsku meistarana til og með 2028. „Að framlengja við BK Häcken og geta um leið farið á lán til Liverpool og reynt fyrir mér erlendis er fullkomin lausn fyrir mig,“ sagði Falk á heimasíðu Häcken. Á heimasíðu Liverpool segir sænski landsliðsmarkvörðurinn eftirfarandi: „Ég er mjög glöð og spennt. Það hefur verið draumur að spila í þessari deild og þetta er stórt félag,“ sagði Falk. Sænska deildin byrjar í mars og Häcken mun væntanlega treysta á Fanneyju Ingu framan af tímabili og vonandi tekst henni þá að nýta tækifærið. Fanney spilaði fjóra leiki á síðasta tímabili þar sem Häcken varð sænskur meistari. Hún hélt þrisvar sinnum marki sínu hreinu, eða í 75 prósent leikja, og fékk líka aðeins á sig eitt mark. Falk fékk á sig sextán mörk í sínum 23 leikjum og hélt markinu hreinu í þrettán leikjum eða 56 prósent leikja. Welcome to Liverpool, Jennifer Falk ❤️ pic.twitter.com/OJJp6rS9bv— Liverpool FC Women (@LiverpoolFCW) January 7, 2026
Enski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira