Telur að Arteta myndi íhuga að taka við Manchester United Aron Guðmundsson skrifar 5. janúar 2026 17:59 Skytturnar hjá Arsenal hafa verið í stuði undir stjórn Mikel Arteta á yfirstandandi tímabili Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United og núverandi sparkspekingur telur á Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, myndi íhuga að taka við Manchester United yrði honum boðið starfið.
Ferdinand sagði þessa skoðun sína í YouTube þætti sínum Rio Ferdinand Presents fyrr í dag eftir að greint hafði verið frá því að Ruben Amorim hefði verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá Manchester United. Amorim tók við United af Erik ten Hag í byrjun nóvember 2024. Undir hans stjórn endaði United í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og tapaði fyrir Tottenham, 1-0, í úrslitum Evrópudeildarinnar. Amorim skilur við United í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er með 31 stig eftir tuttugu umferðir. Eftir leik gegn Leeds United í gær var Amorim harðorður í garð stjórnenda Manchester United á blaðamannafundi og ætla má að ummæli hans þar hafi verið síðasti naglinn í kistu hans í starfi sem knattspyrnustjóri liðsins. Veðbankar eru strax farnir á fullt við að lista upp knattspyrnustjórum sem teljast líklegir arftakar Amorim í starfi. Þar er Oliver Glasner, knattspyrnustjóri Crystal Palace efstur á lista en einnig stjórar eins og Enzo Maresca, sem var á dögunum rekinn frá Chelsea, sem og Unai Emery sem er að gera frábæra hluti með lið Aston Villa. Í beinni útsendingu í þætti sínum fyrr í dag sagðist Rio Ferdinand vera á þeirri skoðun á að aðeins einn af núverandi knattspyrnustjórum ensku úrvalsdeildarinnar myndi ekki íhuga að taka við Manchester United. „Pep Guardiola (Manchester City) myndi horfa á þetta starf og segja að hann væri ánægður þar sem að hann er núna,“ sagði Ferdinand en á sama andartaki benti meðstjórnandi hans í þættinum á það hvort Mikel Arteta, stjóri Arsenal, væri ekki á sömu skoðun og Pep. Arsenal er með sex stiga forskot á Manchster City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, situr einnig á toppi Meistaradeildarinnar, er enn inni í enska bikarnum og komið í undanúrslit enska deildarbikarsins. „Hann myndi aldrei segja það upphátt en ég er að segja ykkur það, Mikel Arteta myndi horfa á þetta starf og íhuga þetta.“
Enski boltinn Manchester United Arsenal FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira