Fyrsti sigurinn hjá Úlfunum var stórsigur á West Ham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 16:59 Hinn átján ára gamli Mateus Mane innsiglaði sigur Wolverhampton Wanderers með þriðja marki liðsins og fagnaði því líka vel. Getty/Simon Stacpoole Wolves fagnaði langþráðum sigri í ensku úrvalsdeildinni í dag en fyrsti deildarsigur liðsins á leiktíðinni kom í fyrsta leik liðsins á árinu 2026.
Wolves vann þá 3-0 sigur á West Ham og þessi skellur West Ham-manna sýnir svart á hvítu hversu alvarleg staðan er hjá Hömrunum. Wolves náði ekki að vinna í fyrstu nítján deildarleikjum sínum en þetta var fyrsti sigur liðsins í ensku úrvalsdeildinni síðan í apríl og um leið fyrsti sigurinn undir stjórn Rob Edwards sem tók við af Vítor Pereira í nóvember. Brighton & Hove Albion var líka búið að bíða lengi eftir síðasta sigri sínum en þó ekki næstum því eins lengi. Brighton vann 2-0 heimasigur á Burnley í dag. Með þessum fyrsta deildarsigri Brighton síðan í lok nóvember komst liðið upp í áttunda sætið en liðið var búið að spila sex leiki í röð án sigurs fyrir sigurinn í dag. Brighton er einu stigi á eftir Sunderland og tveimur stigum á eftir Manchester United. Wolves var komið í 3-0 í fyrri hálfleik og xG hjá West Ham fyrstu 45 mínútur leiksins var aðeins 0,02. Það komu ekki fleiri mörk í seinni hálfleiknum. Jhon Arias skoraði fyrsta markið á fjórðu mínútu eftir undirbúning Hee-Chan Hwang en þetta var fyrsta mark Arias í enska boltanum. Hee-Chan Hwang skoraði síðan sjálfur úr vítaspyrnu á 31. mínútu, hans fyrsta mark síðan í ágúst og staðan var orðin 3-0 eftir mark frá hinum átján ára gamla Mateus Mane á 41. mínútu. Úlfarnir voru búnir að leika 23 deildarleiki í röð án þess að vinna eða alla leiki sína síðan liðið vann 3-0 sigur á Leicester City 30. apríl 2025. Georginio Rutter kom Brighton í 1-0 á 29. mínútu eftir undirbúning Charalampos Kostoulas en Yasin Ayari skoraði annað markið eftir aðeins tveggja mínútna leik í seinni hálfleiknum. Staðan er mjög slæm hjá þremur neðstu liðum deildarinnar þótt hún hafi lagast örlítið hjá Úlfunum. Wolves er í neðsta sæti með sex stig, Burnley er með tólf stig og West Ham er með aðeins fjórtán stig. West Ham er nú fjórum stigum frá öruggu sæti og var að klúðra leik á móti neðsta liði deildarinnar. Hamarnir hafa aðeins fengið eitt stig út úr síðustu fimm leikjum sínum.
Enski boltinn Brighton & Hove Albion Burnley FC West Ham United Wolverhampton Wanderers Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Sjá meira