McGinn útskýrir furðulega fagnið: „Smá grín hjá okkur í klefanum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. janúar 2026 15:57 John McGinn fagnaði fyrra marki sínu með skemmtilegum hætti en setti svo á sig gleraugun frægu þegar hann skoraði í annað sinn. Martin Rickett/PA Images via Getty Images John McGinn, fyrirliði Aston Villa, fagnaði fyrra marki sínu í 3-1 sigri gegn Nottingham Forest með furðulegum hætti.
Skoski miðjumaðurinn skoraði tvö mörk í sigrinum og líður greinilega vel gegn Nottingham Forest því hann hefur aðeins tvisvar skorað tvennu fyrir Aston Villa en í bæði skiptin var það gegn liðinu úr Skírisskógi. McGinn fagnaði fyrra markinu með því að láta eins og tröllkarl, hokinn í baki og með hendurnar út steig hann þung skref, sem hann segir vera einkahúmor hjá leikmönnum liðsins. „Þetta er smá grín hjá okkur í klefanum. Ég veit ekki hversu mikið ég má segja um þetta“ sagði McGinn í viðtali við Sky Sports léttur í bragði. John McGinn fagnar mörkum sínum vanalega með því að setja upp gleraugu í gervi. Hann gerir það fyrir litla frænda sinn sem er sjónskertur en elskar að spila fótbolta. EPA-EFE/TIM KEETON „Þetta snerist um að stjórinn [Unai Emery] hefur oft talað um að taka eitt skref í einu, þannig að ég var að vísa til þess. Hann vildi líka sjá meiri ákefð, sjá mig fara meira inn á teiginn og sem betur fer gerði ég það.“ Sigurinn var mikilvægur fyrir Aston Villa eftir slæmt tap í síðustu umferð og kom fjólubláa liðinu upp í annað sæti deildarinnar. „Þetta var hrikaleg frammistaða í síðasta leik og við vildum svara fyrir það, kannski var þetta upphafið að annarri ellefu leikja sigurgöngu. Við sjáum til.“ Klippa: McGinn fagnaði eins og skrímsli Mark og fagn McGinn má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira