Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 11:02 Raul Jiménez er einn af aðeins tveimur leikmönnum sem hafa skorað úr öllum sínum vítum. Ryan Pierse/Getty Images Raul Jiménez skoraði úr vítaspyrnu í gærkvöldi og jafnaði þar með met Yaya Touré, bestu vítaskyttu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Jiménez skoraði af öryggi úr spyrnunni og tryggði Fulham 1-0 sigur gegn Nottingham Forest. Hann hefur þurft að bíða lengi eftir tækifærinu því þetta var fyrsta vítaspyrna Fulham síðan í janúar. Mexíkóski framherjinn hefur nú skorað úr öllum sínum ellefu vítaspyrnum í deildinni, líkt og Yaya Touré. Þeir tveir eru einu vítaskytturnar sem hafa tekið fleiri en tíu víti og skorað úr þeim öllum en Cole Palmer átti fyrra fullkomna metið, tólf mörk úr tólf vítum, áður en hann klúðraði víti gegn Leicester á síðasta tímabili. Jiménez þarf því núna að skora úr næstu tveimur vítum til að eigna sér metið algjörlega. Fyrrum Brentford liðsfélagarnir Bryan Mbeumo og Ivan Toney voru báðir með tíu mörk úr sínum tíu fyrstu spyrnum en klikkuðu á þeirri elleftu. Yaya Touré var örugg vítaskytta fyrir Manchester City. Nordic Photos/Getty Images Og þó þeir Jimenéz og Touré séu fullkomnar skyttur eiga þessir menn langt í land með að skora flest mörk úr vítum. Alan Shearer (56), Frank Lampard (43), Mohamed Salah (35), Harry Kane (33) og Steven Gerrard (32) hafa skorað mest allra úr vítum en komast ekki á listann yfir sparkvissustu skytturnar.
Jiménez skoraði af öryggi úr spyrnunni og tryggði Fulham 1-0 sigur gegn Nottingham Forest. Hann hefur þurft að bíða lengi eftir tækifærinu því þetta var fyrsta vítaspyrna Fulham síðan í janúar. Mexíkóski framherjinn hefur nú skorað úr öllum sínum ellefu vítaspyrnum í deildinni, líkt og Yaya Touré. Þeir tveir eru einu vítaskytturnar sem hafa tekið fleiri en tíu víti og skorað úr þeim öllum en Cole Palmer átti fyrra fullkomna metið, tólf mörk úr tólf vítum, áður en hann klúðraði víti gegn Leicester á síðasta tímabili. Jiménez þarf því núna að skora úr næstu tveimur vítum til að eigna sér metið algjörlega. Fyrrum Brentford liðsfélagarnir Bryan Mbeumo og Ivan Toney voru báðir með tíu mörk úr sínum tíu fyrstu spyrnum en klikkuðu á þeirri elleftu. Yaya Touré var örugg vítaskytta fyrir Manchester City. Nordic Photos/Getty Images Og þó þeir Jimenéz og Touré séu fullkomnar skyttur eiga þessir menn langt í land með að skora flest mörk úr vítum. Alan Shearer (56), Frank Lampard (43), Mohamed Salah (35), Harry Kane (33) og Steven Gerrard (32) hafa skorað mest allra úr vítum en komast ekki á listann yfir sparkvissustu skytturnar. Sparkvissustu vítaskyttur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Yaya Touré – 100% (11/11) Raúl Jiménez – 100% (11/11) Matt Le Tissier – 96.2% (25/26) Danny Murphy – 94.7% (18/19) Callum Wilson – 94.1% (16/17) James Beattie – 94.1% (16/17) Julian Dicks – 93.8% (15/16) Cole Palmer – 92.9% (13/14) Bukayo Saka – 92.3% (12/13) Thierry Henry – 92% (23/25)
Sparkvissustu vítaskyttur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Yaya Touré – 100% (11/11) Raúl Jiménez – 100% (11/11) Matt Le Tissier – 96.2% (25/26) Danny Murphy – 94.7% (18/19) Callum Wilson – 94.1% (16/17) James Beattie – 94.1% (16/17) Julian Dicks – 93.8% (15/16) Cole Palmer – 92.9% (13/14) Bukayo Saka – 92.3% (12/13) Thierry Henry – 92% (23/25)
Enski boltinn Fulham FC Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira