Alexander Isak fékk sænska gullboltann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2025 10:01 Alexander Isak hefur átt erfitt uppdráttar hjá Liverpool en það kom ekki í veg fyrir að hann var kosinn besti knattspyrnumaður Svía á árinu 2025. Getty/Robbie Jay Barratt Alexander Isak var besti sænski knattspyrnumaðurinn á árinu að mati sænska blaðsins Aftonbladet sem hefur veitt þessi verðlaun frá árinu 1946.
Aftonbladet afhenti Isak verðlaunin en tók það sérstaklega fram að hann væri að fá verðlaunin fyrir frammistöðu sína með Newcastle en skiljanlega ekki með Liverpool. Þetta er mikill heiður „Þetta er mikill heiður og ég er mjög stoltur,“ sagði Alexander Isak. Isak vinnur verðlaunin sem besti knattspyrnumaður Svíþjóðar í fyrsta sinn en þeir Viktor Gyökeres og Dejan Kulusevski hafa fengið þau tvö síðustu ár. Zlatan Ibrahimovic vann Gullboltann tólf sinnum, þar af tíu ár í röð frá 2007 til 2016. @Sportbladet Isak hefur átt erfiða byrjun hjá Liverpool en vorið hjá Newcastle var þeim mun betra. Isak skoraði meðal annars ellefu mörk í sautján leikjum í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í úrslitaleiknum gegn Liverpool þegar Newcastle vann deildabikarinn. Gulboltinn eru verðlaun sænska knattspyrnusambandsins og Aftonbladet, og veitt leikmanni sem hefur gengið í gegnum storma en einnig lyft félagsliði sínu til titils eftir óendanlega langa bið. Með einstökum hæfileikum hefur hann skrifað sína eigin sögu í erfiðustu deild heims. Ótrúlegur bónus fyrir ferilinn „Þetta skiptir mig miklu máli. Ég held að þetta sé kannski ekki eitthvað sem maður hugsar of mikið um þegar maður verður atvinnumaður, það er ekki eitthvað sem maður sækist eftir eða þvíumlíkt. En þetta er ótrúlegur bónus fyrir ferilinn,“ sagði Isak. Isak hefur náð langt á knattspyrnuferlinum þökk sé fjölskyldu sem þýðir allt fyrir hann. „Sá sem ég er er afrakstur fjölskyldu minnar, mér finnst ég hafa mótast af henni á svo marga mismunandi vegu. Foreldrar mínir, systkini mín, ég hef fengið mismunandi hluta og eiginleika frá öllum. Þegar ég horfi á sjálfan mig sé ég mismunandi hluta af fjölskyldumeðlimum mínum,“ sagði Isak.
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira