City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2025 15:00 Antoine Semenyo fagnar marki sínu á móti Manchester United á Old Trafford í vikunni. Getty/Robin Jones Heitasti bitinn á markaðnum í janúar verður væntanlega kantmaðurinn Antoine Semenyo hjá Bournemouth en heimildir að utan herma að mörg af stærstu félögum Englands hafi áhuga á honum.
Semenyo er með riftunarákvæði í samningi sínum hjá Bournemouth sem myndi leyfa þessum 25 ára leikmanni að fara fyrir 65 milljónir punda, ellefu milljarða króna, á fyrstu tveimur vikum janúargluggans. Manchester City er meðvitað um þetta tækifæri en stjórnarmenn félagsins telja að það gæti verið röð af félögum sem bíða eftir að virkja ákvæðið, þar á meðal Liverpool, Manchester United, Tottenham og Arsenal. Þetta segja heimildarmenn ESPN. Liverpool hefur verið sterklega orðað við Semenyo í ljósi óvissu um framtíð Mohamed Salah. Tottenham og United sýndu bæði áhuga í sumar og Arsenal hefur einnig skoðað þennan landsliðsmann Gana áður. Riftunarákvæði Semenyo gildir aðeins fyrstu tvær vikur janúargluggans til að verja Bournemouth gegn því að samningur sé gerður seint og félagið hafi þá enga möguleika á að finna staðgengil fyrir einn af lykilleikmönnum sínum. Ef hann verður áfram á Vitality-leikvanginum í janúar mun ákvæðið gilda aftur í sumar fyrir lægri upphæð. Semenyo er að eiga sitt besta tímabil hjá Bournemouth og hefur skorað sjö mörk í fimmtán leikjum. Hann skoraði ellefu mörk í 37 leikjum árið áður og átta mörk í 33 leikjum á tímabilinu 2023-24 – hans fyrsta heila tímabil hjá félaginu eftir að hann kom frá Bristol City í janúar 2023. Semenyo, sem fer ekki á Afríkumótið þar sem Gana komst ekki áfram, skoraði sitt fyrsta mark síðan í október í 4-4 jafnteflinu gegn Manchester United á Old Trafford. Hann var verðlaunaður með nýjum samningi í júlí sem bindur hann við Bournemouth til 2030, þótt búist sé við að hann fari í janúar eða næsta sumar.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira