Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2025 19:20 Tveir markahrókar, Mo Salah og Ian Rush en Rush afhenti Salah gullskóinn í lok síðustu leiktíðar. Getty/Liverpool FC Liverpool-goðsögnin Ian Rush var lögð inn á sjúkrahús og var í 48 klukkustundir á gjörgæslu vegna öndunarerfiðleika.
Enskir fjölmiðlar segja frá veikindum markahæsta leikmanns Liverpool frá upphafi. Rush var fluttur í skyndi á sjúkrahús. The Daily Mail greinir frá því að goðsögn Liverpool hafi síðan brugðist vel við meðferð á Countess of Chester-sjúkrahúsinu eftir að hafa þjáðst af öndunarerfiðleikum. Hinn 64 ára gamli er enn á sjúkrahúsinu eftir nokkra áhyggjufulla daga. Grunur leikur á að hann hafi smitast af afbrigði „ofurflensunnar“ sem hefur breiðst út undanfarið. View this post on Instagram A post shared by 44teams (@44teams) Rush, markahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi, er sendiherra á Anfield og er talinn einn besti breski framherji í sögu leiksins. Fyrrverandi framherji Liverpool er sagður hafa fundið fyrir vanlíðan í vikunni áður en hann kallaði eftir hjálp og var fluttur í skyndi á sjúkrahús og lagður á gjörgæsludeild þar sem hann fékk bráðameðferð. Sem betur fer er Rush nú við góða heilsu og vonast til að komast heim fyrir jól. Goðsögn Liverpool skoraði 346 mörk í öllum keppnum á tíma sínum hjá félaginu og er næstmarkahæsti leikmaður í sögu ensku bikarkeppninnar með 41 mark. Rush var lykilmaður í yfirburðum Liverpool á níunda áratugnum, en hann átti tvö sigursæl tímabil á Anfield, auk þess sem hann lék með Juventus. Hann var einnig markahæsti leikmaður Wales með 28 mörk þar til það met var slegið af fyrrverandi framherja Real Madrid og Spurs, Gareth Bale, árið 2018. Rush er nýjasta fórnarlamb faraldursins sem gengur yfir landið, en sjúkrahús víðs vegar um Bretland hafa lýst yfir neyðarástandi.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira