Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. desember 2025 16:00 Þorleifur Örn, Finnur og Bjarni Thor eru metnir hæfir til að gegna hlutverkinu. Vísir Jóhann Páll Jóhannsson settur menningarráðherra þegar kemur að ráðningu nýs óperustjóra hefur boðað þrjá umsækjendur í viðtal. Þrír hafa verið metnir hæfir til að gegna stöðunni en til stóð að skipa í stöðuna fyrir 15. nóvember síðastliðinn.
Sú flækja kom upp við meðferð umsókna að meðal umsækjenda sem metnir voru hæfir var Finnur Bjarnason. Finnur var í nóvember fyrir tveimur árum ráðinn verkefnisstjóri hjá menningarráðuneytinu vegna stofnunar þjóðaróperu. Hann hefur því unnið náið innan ráðuneytis Loga Einarssonar sem taldi sig ekki hæfan til að taka ákvörðun um ráðninguna. Sérstök hæfnisnefnd tók viðtöl við umsækjendur og skilaði skýrslu til ráðuneytisins er varðaði hæfi umsækjenda. Samkvæmt heimildum Vísis voru Finnur Bjarnason og Bjarni Thor Kristinsson metnir mjög hæfir af nefndinni en Þorleifur Örn metinn hæfur. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að ráðherra ræði við umsækjendurna þrjá fyrir jólin. Vegna þess hve fáir vinnudagar eru yfir hátíðarnar má telja líklegt að nýr óperustjóri verði ekki ráðinn fyrr en á nýju ári. Óperustjóri mun heyra undir Þjóðleikhússtjóra í skipuriti, eiga við hann samráð um gerð fjárhagsáætlana og mikilvægar ákvarðanir er varðar rekstur hennar. Þá hefur Þjóðleikhúsráð eftirlit með starfsemi hennar og rekstri. Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri er meðal þeirra fimm sem manna hæfnisnefndina. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir er formaður nefndarinnar en auk þeirra sátu í nefndinni, Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Þóra Einarsdóttir óperusöngvari. Þóra átti einnig sæti í undirbúningsnefnd um stofnun Þjóðaróperu sem vann að stofnun Þjóðaróperunnar með Finni Bjarnasyni, verkefnastjóra í ráðuneytinu. Hlutverk nýstofnaðrar óperu verður að sviðsetja óperuverk, sinna sögulegri arfleifð óperulista og glæða áhuga landsmanna á listforminu. Samkvæmt frumvarpi um stofnun þjóðaróperu verða þar tólf einsöngvarar í fullu starfi og sextán manna kór í hálfu starfi.
Þjóðaróperan Tónlist Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Menning Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Tónlist Fleiri fréttir Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira