Fallhlífin flæktist í stélið Samúel Karl Ólason skrifar 11. desember 2025 11:46 Maðurinn skall á stélinu og slasaðist lítillega á fótum, auk þess sem hann skemmdi stélið. Honum tókst að endingu að skera sig lausan. Ástralskur fallhlífarstökkvari komst í hann krappann í haust þegar hann losaði óvart varafallhlíf sína, þegar hann stökk út úr flugvél. Fallhlífin flæktist í stéli flugvélarinnar og þar hékk maðurinn um tíma, áður en honum tókst að losa sig og féll hann þá aftur til jarðar.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Ástralíu (ATSB) hefur birt myndband af atvikinu samhliða skýrslu sem gefin var út í morgun. Atvikið átti sér stað þann 20. september, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Ástralíu, þegar sautján manna hópur fór í fallhlífarstökk úr rúmlega 4.500 metra hæð. Þegar fyrstu tveir mennirnir voru að koma sér úr flugvélinni flæktist handfang varafallhlífar hans í væng flugvélarinnar og opnaðist. Við það féll hann af flugvélinni og lenti í leiðinni á hinum manninum sem var að koma sér fyrir svo hann féll til jarðar. Fyrri maðurinn féll þó ekki til jarðar þar sem fallhlífin flæktist í stéli flugvélarinnar. Báðir mennirnir voru með myndavélar á sér og einnig var búið að koma fyrir myndavél á væng flugvélarinnar svo atvikið var fangað á myndband. Myndband ATSB um slysið má sjá hér að neðan. Skýrslu stofnunarinnar má finna hér. Eins og sjá má á myndbandinu hér að ofan tókst manninum að skera sig lausan en hann slasaðist á fótum þegar þeir lentu á stélinu. Eftir að hann féll aftur til jarðar tókst manninum að opna aðalfallhlíf sína og losa flækjurnar sem mynduðust. Honum tókst í kjölfarið að lenda á jörðu niðri og komst tiltölulega óskaddaður frá þessu. Einnig tókst að lenda flugvélinni, þó stélið hefði skemmst og að fallhlífin hefði enn verið föst á stélinu. Sjá má frétt ríkisútvarps Ástralíu um atvikið í spilaranum hér að neðan.
Ástralía Fréttir af flugi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira