Dagur mannréttinda (sumra) barna Vigdís Gunnarsdóttir skrifar 21. nóvember 2025 09:31 Í gær, 20. nóvember, var margt um að vera en dagurinn var helgaður mannréttindum barna. Á Alþingi fór fram sérstök umræða um stöðu barna á Íslandi. Mest höfðu þingmenn sig fram um að ræða vímuefnaneyslu unglinga, skjátíma og stöðu drengja í skólakerfinu. Allt mikilvægt, en varnarlausi hópurinn, fötluð börn sem sitja árum saman á biðlistum án þjónustu, fékk ekki pláss í umræðunni. Einn þingmaður, Ester Halldórsdóttir, vék orðum að biðlistum en þögnin var annars ærandi. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma fyrr um daginn kom heldur ekkert fram um stöðu fatlaðra barna, ekki eitt orð. Þetta gerist á sama tíma og við hjá Biðlisti.is höfum haft hátt í margar vikur. Við höfum afhent þingmönnum bæklinga, gögn, reynslusögur, myndbönd og undirskriftir. Við höfum talað við ráðherra. Við höfum barist á öllum vígstöðum. Foreldrar fylli endurhæfingarstöðvar Í gær fór einnig fram Heilbrigðisþing þar sem umfjöllunarefnið var endurhæfing. Ég leyfi mér að velta fyrir mér hvort ekki væri nær að heilbrigðiskerfið verði nú búið undir að taka á móti hópi foreldra fatlaðra barna sem eru að kikna undan álagi, veikir af svefnleysi, áhyggjum og þrotlausri umönnun. Foreldrar sem standa einir í því að fylla upp í tómið þar sem kerfið bregst. Í erindi Kristjáns G. Guðmundssonar, formanns Félags endurhæfingarlækna, kom einmitt þetta fram en hann sagði foreldra langveikra og fatlaðra barna búi oft á tíðum við heimilisaðstæður sem væru gjörsamlega óboðlegar og geta ekki boðið upp á neitt annað en veikindi og þreytuheilkenni og heilsubrest. Í nýrri rannsókn á foreldrum ungra einhverfra barna voru geðheilbrigðisvandamál tvisvar sinnum algengari hjá foreldrum en í almennu þýði. Margar mæður eru einnig með alvarlegan líkamlegan heilsuvanda. Aðrar rannsóknir sýna að umönnun barna með fötlun tengist aukinni áhættu á bæði líkamlegum og andlegum heilsubresti og minni þátttöku á vinnumarkaði, sérstaklega meðal mæðra. Ef ekkert er gert erum við ekki aðeins að horfa upp á börn bíða árum saman eftir lögbundinni þjónustu, við erum að framleiða kynslóð foreldra sem eru að brotna niður, detta út af vinnumarkaði og enda í heilbrigðiskerfinu á örorku vegna álags sem hefði mátt fyrirbyggja með snemmtækri og raunverulegri þjónustu. Með þögn sinni samþykkja ráðamenn stöðuna Við foreldrar berjumst daglega fyrir börnunum okkar, en enginn heyrir. Þögnin sem við mætum er orðin að annarri byrði á öxlum okkar. Barnið mitt og fjölmörg önnur börn eru olnbogabörn ríkisins, ósýnileg fyrir kerfinu sem á að vernda þau og svikin um lögbundna þjónustu sem á að styðja þau. Um er að ræða ung börn, rétt að hefja lífið en standa nú þegar utan kerfis sem á að halda á þeim höndum. Þetta á að heita velferðarkerfi, en fyrir okkur foreldra fatlaðra barna eru orð eins og velferð, farsæld og snemmtæk íhlutun aðeins tóm hljóð. Barnið mitt er ekki langveikt. Hann er einhverfur, með ósýnilega fötlun sem fæstir skilja og enn færri gera sér grein fyrir hvað þýðir fyrir fjölskylduna. Við lifum við langvinna streitu, áralangt svefnleysi, eilífa heilaþoku, minnisleysi og stöðugar áhyggjur. Innra með okkur er sorg sem við höfum aldrei fengið rými eða tíma til að vinna úr. Sorgin vegna brostinna drauma um framtíðina og sorgin yfir því að horfa á barnið sitt þurfa að kljást við erfiðleika sem við sem foreldrar myndum frekar vilja taka á okkur. Ósýnilegur en alvarlegur vandi Við lifum í heimi þar sem barnið okkar er ósýnilegt og við með honum. Heimi þar sem við þurfum að sanna okkur á hverjum einasta degi, rífa okkur áfram, anda djúpt og vona að morgundagurinn verði aðeins betri en sá í gær. Við erum fólkið sem skreppur í bíltúr klukkan fimm á morgnana, ekki til að fara í flug, heldur til að aðrir heimilismenn geti sofið eftir svefnlitla nótt. Við erum fólkið í örvæntingu í matarbúðinni að leita að eina rétta kexinu, súkkulaðiíssósu eða tannkreminu sem barnið einfaldlega verður að fá til að róa taugakerfið sitt. Á okkar heimili er ekki í boði að segja: “Ég kaupi seinna. Þetta er ekki til.” Við erum fólkið sem notar heyrnarhlífar og eyrnatappa alla daga til að halda ró í storminum. Við byrjum að hafa áhyggjur ef það er óveður og ekki hægt að fara út í göngutúr því við vitum hvað það þýðir. Við erum með nagandi áhyggjur af jóla- og páskafríum því þau skapa rútínuleysi fyrir barnið okkar og heimur þess hrynur. Við lærum að lesa líðan barnsins án orða og lítum á hvern dag sem nýtt verkefni. Í þessum heimi kemur okkur fátt, ef nokkuð, á óvart. Þótt við elskum börnin okkar meira en orð fá lýst þurfum við stundum klapp á bakið, faðmlag og smá stuðning. Ég hef sjálf brotnað niður í fataklefanum í leikskólanum þegar mér var rétt hlýtt faðmlag og þessi andartök skipta meira en allt. Þau eru augnablik þar sem einhver staldrar við og raunverulega sér mann. Snemmtæk íhlutun er ekki lúxusvara Snemmtæk íhlutun er grunnstoð í lífi fatlaðra barna, ekki lúxusvara. Þegar kerfið bregst safnast upp vandi sem verður erfiðari, dýrari og sársaukafyllri að takast á við síðar. Við vitum þetta öll og samt bíða börnin ár eftir ár. Sem móðir finn ég hjartað mitt bresta. Mér finnst enginn sjá barnið mitt. Ég sé sár sonar míns sem fylgja þögninni sem hann býr í, angistina, reiðina og sorgina. Ég sé það sem aðrir kjósa að horfa framhjá. Við höfum beðið nóg. Börnin okkar hafa beðið nóg. Kominn er tími til að stjórnvöld rísi undir þeirri skyldu sem á þau er lögð og í samvisku hvers manns að öll börn eiga rétt á þjónustu, vernd og virðingu. Ekki bara sum. Skrifaðu undir á: https://island.is/undirskriftalistar/d18cfc7d-7e62-4d9c-95da-447ce16d9ce3 Höfundur er móðir einhverfs barns, liðsmaður Biðlisti.is og stjórnarmaður í Einhverfusamtökunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Réttindi barna Mest lesið Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun