Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Sindri Sverrisson skrifar 20. nóvember 2025 14:11 Jónatan Ingi Jónsson hefur leikið með Val síðustu tvö ár og er með samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára. vísir/Diego Dr. Football, eða Hjörvar Hafliðason, varpaði sprengju í þætti sínum í vikunni þegar hann sagðist hafa heyrt af því að Jónatan Ingi Jónsson vildi fara frá Val til erkifjendanna í KR. Hvorki Jónatan né formaður knattspyrnudeildar Vals vilja þó kannast við að þetta sé rétt. „
Nei, þetta er ekki rétt. Ég hef aldrei sagt við neinn að ég vilji fara í KR,“ segir Jónatan í samtali við Vísi og kveðst hafa komið af fjöllum þegar hann sá frétt um málið í gær. „Ég held að það sé ekkert til í þessu. Við könnumst ekkert við þetta og ég veit ekki hvaðan þetta kemur,“ segir Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals. Kvitturinn um áhuga Jónatans á að fara til KR kemur á sama tíma og Júlíus Mar Júlíusson, miðvörður KR, hefur verið orðaður við Val. Valsmenn og fleiri félög hafa sýnt áhuga á að fá Júlíus en eftir því sem næst verður komist þykir verðmiði KR of hár. Félagið metur hann á 15 milljónir króna eða tvöfalt meira en félagið greiddi Fjölni fyrir þennan efnilega 21 árs gamla leikmann, fyrir ári síðan. Júlíus er með samning við KR sem gildir út árið 2028 og Jónatan Ingi er með samning við Val sem gildir út árið 2027. Jónatan skoraði 13 mörk í 27 deildarleikjum fyrir Val í fyrra, þegar þessi uppaldi kantmaður FH sneri heim úr atvinnumennsku, en gerði sex mörk á nýafstaðinni leiktíð, þegar Valsmenn höfnuðu í 2. sæti.
Besta deild karla Valur KR Mest lesið Ísland - Eistland 6-2 | Mörkunum rigndi hjá íslensku strákunum í Laugardalnum Fótbolti Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Handbolti CrossFit-kona fær fjögurra ára bann fyrir að breyta myndbandi Sport Tékkland - Írland | Mikilvægasti leikur Heimis með Íra til þessa Fótbolti Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Handbolti Ósáttur Verstappen lét reka blaðamann út: „Hypjaðu þig“ Formúla 1 Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Íslenski boltinn Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Enski boltinn Banna trans konum að keppa á Ólympíuleikunum Sport Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir Handbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Sér um allt í Bestu deildinni: „Fólkið er ekki neitt án leiðtoga“ KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Sjá meira