Graham Potter: Það er allt í lagi með Alexander Isak Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2025 15:01 Alexander Isak sat allan tímann á varmannabekk Liverpool í tapleiknum á móti Manchester City um síðustu helgi. Getty/Robbie Jay Barratt Alexander Isak tók ekki þátt í stórleik Liverpool og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina en hann er nú mættur á æfingar með sænska landsliðinu fyrir leiki í undankeppni HM.
Potter valdi hann í landsliðið þótt sænski framherjinn hafi ekki spilað fyrir Liverpool síðan 22. október. „Ég hef talað stuttlega við hann. Honum líður vel, það er allt í lagi með hann,“ sagði Graham Potter við sænska ríkisútvarpið. Nýr landsliðsþjálfari Svíþjóðar sagði strax við val á hópnum að Alexander Isak myndi ekki spila alla undankeppnisleikina fyrir HM gegn Sviss og Slóveníu en að hann gæti tekið þátt í leikjunum. Sænskir fjölmiðlar hafa fjallað um sögusagnir um að sóknarstjarna Liverpool myndi missa af landsliðsverkefninu vegna nárameiðsla sem hafa hrjáð hann undanfarið en Potter eyddi þeim efasemdum. Isak er mættur til æfinga. Það var líka vafi um þátttöku annars leikmanns úr ensku úrvalsdeildinni. Potter sagði frá því á blaðamannafundi í Marbella, þar sem Svíþjóð undirbýr sig fyrir komandi undankeppnisleiki fyrir HM, að allir leikmenn sem valdir voru, fyrir utan Lucas Bergvall, séu komnir til Spánar. Bergvall, sem fékk heilahristing í síðustu viku gegn Chelsea, er á leiðinni. „Við verðum að athuga með læknana. Hann æfir á morgun en hann má ekki skalla,“ sagði Potter. Fyrsti landsleikur Potters sem landsliðsþjálfari Svíþjóðar fer fram á laugardag, á útivelli gegn Sviss í undankeppni HM.
HM 2026 í fótbolta Enska augnablikið Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Fleiri fréttir Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Sjá meira