Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Valur Páll Eiríksson skrifar 5. nóvember 2025 21:45 Stefán Teitur spilaði 40 mínútur af fótbolta í kvöld, sem heyrir til frétta. Bradley Collyer/PA Images via Getty Images Íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson spilaði rúmar 40 mínútur í 2-1 sigri Preston North End á Swansea City í ensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Hann hefur ekki spilað svo mikið í einum og sama leiknum síðan í ágúst.
Stefán Teitur var sem fyrr á varamannabekk Preston en hann hefur verið úti í kuldanum í vetur. Hann kom þó inn sem varamaður í síðustu tveimur leikjum en spilaði um 10 mínútur í þeim báðum. Vinstri bakvörðurinn Thierry Small kom Preston í forystu eftir aðeins átta mínútna leik og 1-0 stóð í hléi PNE í vil. Aðeins fjórar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þegar framherjinn Milutin Osmajic tvöfaldaði forystuna. Stefán Teitur kom inn sem varamaður fimm mínútum eftir markið, á 54. Mínútu, og hefur hann ekki spilað svo margar mínútur fyrir Preston síðan í lok ágúst. Raunar hefur hann alls spilað 28 mínútur allan október og september. Suður-Kóreumaðurinn Eom Ji-sung kom inn af bekk Swansea í síðari hálfleik og minnkaði muninn seint í leiknum. Við tóku spennandi lokamínútur en Preston hélt út og vann 2-1 sigur. Um er að ræða þriðja leikinn í röð sem Preston vinnur og hefur Stefán Teitur tekið þátt í þeim öllum, eftir að hafa setið fjóra leiki í röð þar á undan á bekknum. Preston situr í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig, sex frá toppliði Coventry en aðeins tveimur frá Stoke City sem er í öðru sæti og stigi á eftir Middlesbrough í því þriðja. Swansea er í 17. sæti með 17 stig.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira