Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Sindri Sverrisson skrifar 31. október 2025 22:42 Erling Haaland mætti svakalegur út í búð. Skjáskot/YouTube Erling Haaland fór í fyrsta sinn á ævinni í grímubúning, í tilefni hrekkjavökuteitis sem hann fór í með Isabel Haugseng Johansen kærustu sinni og barnsmóður. Hann fór í gervi Jókersins og kom íbúum Manchester-borgar skemmtilega á óvart.
Óhætt er að segja að gervið hafi verið vel heppnað og Haaland gæti eflaust spjarað sig sem illmenni í Batman-myndum ef hann væri ekki upptekinn við að raða inn mörkum fyrir Manchester City. Haaland birti skemmtilegt myndband af sér í búningnum á nýrri YouTube-síðu sinni, sem sjá má hér að neðan. „Þetta er alveg sjúkt,“ sagði Haaland þegar hann skoðaði sjálfan sig í speglinum, eftir að hafa viðurkennt að hann hefði í raun aldrei áður farið í svona gervi. Kærasta hans, Isabel Haugseng Johansen, var líka ánægð með gervið og sagðist hlakka til að geta gert eitthvað með sínum manni eftir að þau eignuðust sitt fyrsta barn í lok síðasta árs. Hún var sjálf í búningi Kattarkonunnar. Áður en þau fóru saman í partý skellti Haaland sér út að versla bleyjur, í Jóker-búningnum, og heilsaði upp á íbúa Manchester sem voru flestir fljótir að átta sig á hver væri þarna á ferð, enda ekki margir með sömu líkamsbyggingu og Norðmaðurinn stæðilegi. Næsti leikur Haaland og félaga er stórleikur á sunnudaginn gegn Bournemouth sem er í 2. sæti, með tveimur stigum meira en City. Erling Haaland og Isabel Haugseng Johansen skelltu sér í langþráð partý eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn í lok síðasta árs.Skjáskot/Youtube
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira