Djúp lægð nálgast landið úr suðri Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2025 07:12 Snemma í fyrramálið má búast við allt að 28 m/s á Suðausturlandi, en annars 13-20. Vísir/Anton Dálítill éljagangur verður á norðurhluta landsins fram undir hádegi í dag og samhliða því má búast má við lélegu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum, einkum á fjallvegum, á Norðausturlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að annars sé hægari vindur í öðrum landshlutum, en snjókoma með köflum á Suðaustur- og Austurlandi. Þurrt verður að mestu suðvestantil. „Í kvöld nálgast djúp lægð landið úr suðri sem veldur norðaustlægum áttum á öllu landinu. Snemma í fyrramálið má búast við allt að 28 m/s á Suðausturlandi, en annars 13-20. Dregur úr vindi suðaustantil síðdegis á morgun, en allt að 25 m/s norðvestan og vestantil annað kvöld. Lægðinni fylgir fremur hlýtt loft og því má búast við talsvert mikilli úrkomu víða um land, fyrst sem snjókoma eða slydda en síðar er útlit fyrir rigningu, einkum sunnan- og austantil. Þar sem mikill snjór hefur fallið síðustu daga má búast við töluverðri hláku og er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Gengur í norðaustan 13-20 m/s, en 20-28 suðaustanlands fram eftir degi. Bætir í vind norðvestast síðdegis. Rigning eða slydda með köflum, en talsverð rigning austantil og á Ströndum. Hlýnandi veður, hiti 2 til 8 stig seinnipartinn. Á laugardag: Austan og norðaustan 8-15, en hvassviðri norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum, snjókoma og skafrenningur á Vestfjörðum, en talsverð rigning suðvestantil. Hiti 1 til 9 stig, mildast sunnanlands. Á sunnudag: Norðaustan 8-15 norðvestantil, en annars hægari. Víða snjókoma eða slydda, einkum á norðvestanverðu landinu. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Á mánudag: Norðaustlæg átt og víða rigning eða slydda en snjókoma norðvestantil. Hiti 1-8 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga eða breytileg átt og víða rigning eða slydda, einkum sunnantil. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi suðlægar áttir með slyddu eða snjókomu, en þurrt að mestu austantil. Heldur svalara.
Veður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira